Stúlkum úr KF/Dalvík var boðið á landsleikinn í gærkvöld sem var gott mál - hefði viljað sjá KSÍ bjóða yngri flokkum á leikinn. Allir hefðu grætt og stuðningsfólk framtíðar tekið sín fyrstu skref. Áfram Ísland!
@GGunnleifsson til hamingju formaður City á Íslandi - var viðstaddur stofnfund City klúbbsins á Íslandi á Glaumbar sem þú stýrðir og ég var skráður. Þarna voru m.a. Siggi Helga, Heimir Guðjóns (markvörður) og Atli Eðvalds.
Þjálfarar í sviðsljósi, Arnar og Óskar. Þeir mega og eiga að tjá sig. Hvaðan kemur þetta bull um leikbann?Kannski mörgum brugðið því báðir eru þeir þekktir fyrir að vera dipló í viðtölum en fótboltinn getur verið grimmur. Það sást í gær.
Ungi markvörðurinn er félagi í Víkingi svo mistökin eru ekki stór og sekt er viðeigandi refsing. Það er alltaf fyrsti og í reynd síðasti kostur að úrslit kappleikja ráðist á vellinum en ekki utan vallar.
Einhverjir vildu að Stjörnunni yrði úrskurðaður sigur í leik gegn Víkingi í deildarbikar KSÍ sakir þess að ungur markvörður Víkings, sem ekki var skráður á leikskýrslu, kom inn á. Ritari Víkings gerði mistök og skráði rangan mann á skýrsluna sem varamarkvörð liðsins í leiknum.
MLS í USA var ,,elliheimili” bestu leikmanna í fótbolta og jafnframt góð búbót fyrir þá til mögru áranna. Það hefur breyst til hins betra en er USA orðið vettvangur fyrir unga leikmenn á frambraut?
Þróun ungra leikmanna þarf að bæta með betra fyrirkomulagi mótahalds. Lærum af öðrum þjóðum. Nýtt fyrirkomulag Íslandsmótsins í knattspyrnu er forsenda framfara.
@GummiBen Minni á að fyrsti leikur Trabzonspor í Evrópu var gegn ÍA á Akranesi 15. sept. 1976 í Meistarakeppni félagsliða. (Trabzonspor meistarar í fyrsta sinn 1975-76).
@14siggihelgason Penalty, player by mistake wants to head the ball in a situation most players would kick it - clear penalty - btw LFC the better team today (how does VAR work? who knows)
mótshaldara um fleiri leiki til að eiga fyrir rekstri? Hver tekur upp vasaklút vegna leikmanna sem fá marga milljónir, tugi milljóna eða jafnvel hundruð milljóna á mánuði fyrir að sparka í bolta vegna álags?
Grátið í fótbolta með fullar hendur fjár! Oft hefur verið grátið yfir úrslitum í fótbolta en nú hin seinni misseri meir og meir yfir álagi á leikmenn á alþjóðavettvangi sem þéna meir og meir. Hvort skyldi koma á undan kröfur leikmanna um auknar tekjur (og umba þeirra) eða þarfir