Aðalfundur Hallveigar verður haldinn á Hallveigarstíg 1, föstudaginn 23. ágúst klukkan 18 🌹
Við fáum kynningu á skýrslu núverandi stjórnar, samþykkjum stjórnmálaályktun og kjósum nýja stjórn Hallveigar. Framboð til stjórnar berist á netfangið [email protected] - sækið um!
Jóhann Páll og Dagbjört sitja fyrir svörum þar sem spurt verður um liðinn þingvetur, öryrkjafrumvarpið, útlendingafrumvarpið og fleira og einnig rætt um næsta þingvetur. Boðið verður upp á spurningar úr sal.
Fyrsti bjórinn verður í boði Hallveigar, hlökkum til að sjá ykkur 🌹
Borgar Borgarlínan sig?
Hallveig kynnir sjötta og síðasta myndband í seríu okkar um Borgarlínuna. Hér svarar Guðmundur Kristján borgarskipulagsfræðingur því hvort Borgarlínan borgi sig.
Hverjum nýtist Borgarlínan?
Hallveig kynnir fimmta myndband í seríu okkar um Borgarlínuna. Hér svara Sunna Björg hjá Vegagerðinni og Guðmundur Kristján borgarskipulagsfræðingur því hverjum Borgarlínan muni nýtast.
Af hverju er Borgarlínan umdeild?
Hallveig kynnir fjórða myndband í seríu okkar um Borgarlínuna. Hér svara Sunna Björg hjá Vegagerðinni og Guðmundur Kristján borgarskipulagsfræðingur því hvers vegna eða hvort Borgarlínan sé umdeild.
Hver er munurinn á Borgarlínu og Strætó?
Hallveig kynnir þriðja myndband í seríu okkar um Borgarlínuna. Hér lýsa Sunna Björg hjá Vegagerðinni og Guðmundur Kristján borgarskipulagsfræðingur muninum á Borgarlínu og Strætó.
Af hverju skiptir Borgarlínan máli?
Hallveig kynnir annað myndband í seríu okkar um Borgarlínuna. Hér ræða Sunna Björg hjá Vegagerðinni og Guðmundur Kristján borgarskipulagsfræðingur um mikilvægi borgarlínu í stækkandi samfélagi.
Hvað er borgarlínan?
Hallveig - ungt jafnaðarfólk í Reykjavík kynnir seríu af fræðslumyndböndum um borgarlínu þar sem algengum spurningum ungs fólks er svarað.
Tilgangur myndbandanna er að auka skilning og þátttöku ungs fólks í samfélagslegri umræðu.
Fylgist með! 🥳
Vissir þú að þrátt fyrir að vera með næstlægsta skuldahlutfallið af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu ber Reykjavíkurborg þungann af allri félagsþjónustu sem þar er veitt?
Nýkjörin stjórn Hallveigar!🌹
“Ég vil gera stjórnmálin aðgengilegri fyrir allt ungt fólk; tala mannamál, hlusta og leyfa fólki að hafa sínar skoðanir. Verkefni okkar í UJ er að fylkja ungu fólki saman um jafnaðarstefnuna” segir nýr forseti 🙏
https://t.co/DDIASqr7OP
Sendinefnd ESB hefur boðið Hallveigu - ungu jafnaðarfólki í Reykjavík í vísindaferð til sín á Reykjastræti 2, föstudaginn 24. mars kl. 16:30. Það eru 25 pláss laus! Skráning hér: https://t.co/TYX4mkCFud 🥳
Sendinefnd ESB hefur boðið Hallveigu - ungu jafnaðarfólki í Reykjavík í vísindaferð til sín á Reykjastræti 2, föstudaginn 24. mars kl. 16:30. Það eru 25 pláss laus! Skráning hér: https://t.co/TYX4mkCFud 🥳
Fimmtudaginn 2. mars klukkan 20 verður Bjór með borgarfulltrúa haldinn af Hallveigu í annað skipti í ár. Viðburðurinn er haldinn á Loft og þar tökum við spjallið við Sabine Leskopf borgarfulltrúa Samfylkingarinnar.
Öll eru velkomin á Loft, fimmtudaginn 2. mars klukkan 20! 🍻🌹
Á föstudaginn 17. febrúar verður Bjór með borgarfulltrúa haldinn af Hallveigu í fyrsta skipti í ár. Við hittumst á Aldamótum kl 18 og tökum spjallið við Hjálmar Sveinsson, sem er m.a. fulltrúi Samfylkingar í umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar. Öll velkomin - bjór í boði 🌹🍻
Nú fer málefnastarf Hallveigar að hefjast þetta árið 🥳 Það verða opnar umræður um pólitík, með það markmið að hafa áhrif á stefnu Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hver málefnahópur hittist á eigin vegum undir stjórn málefnastjóra úr stjórn Hallveigar. Skráðu þig og vertu með!
Allir félagar Hallveigar sem mættu á landsfund Samfylkingarinnar geta sótt um endurgreiðslu á landsfundargjaldi 🥳 Umsóknarfrestur er 14. desember. Hallveig þakkar velunnurum félagsins ☺️🌹🌹