Veit ekki hvernig mér á að líða með það að ég benti nýjum starfsmanni Serrano í Spönginni í hvaða skúffu ákveðin auka meðlæti eru geymd þegar hún bjó til vefjuna mína. Selfclaimed starfsmaður mánaðarins takk fyrir 🙋🏼♀️
Það er eins og allt óeðlilegt sé bara fullkomlega normið á meðgöngu:
Gleymir öllu - jebb.
Úrið í ysta gati - ásættanlegt.
Stækka um skóstærð - kemur fyrir.
Vilja pylsu í morgunmat - venjulegt.
Missa höndina - eðlilegt.
Það er hægt að loka bönkum og fjármálafyrirtækjum vegna HM en ekki leikskólum, sjúkrahúsum, slökkvistöðum og lögreglustöðum. Hvor tegundin af störfum eru aftur svo mikilvæg og ábyrgðarfull að þau krefjast ofurlauna?
Að búningamálum kvennalandsliðsins - saklaus pæling:
Ef HM kvk væri á “undan” kk og þær fengið nýjar treyjur fyrir mótið, hefðu karlarnir líka þurft að bíða eftir sínum treyjum? Eða myndu þeir hreinlega fá glænýjar?