Ef ykkur finnst hinsegin baráttan langt komin endilega hendið ykkur yfir á MæðraTips þar sem má sjá mæður ausa viðbjóðslegum fordómum og fáfræði yfir fleiri fleiri umræður.
Hjarta mitt grætur yfir þessu bakslagi💔
Pæling um nafnlausa pósta á FB.
Fólk vil spyrja í nafnleysi því málefnið er vandræðalegt eða viðkvæmt eða tengt barni en ætlast til að fá svör frá fólki undir nafni sem hefur reynslu af þessu vandræðalega eða viðkvæma og opinberi það?
Skil ekki 😬🙃
Það er ógeðslega erfitt að mitt aðal áhugamál séu ferðalög og það er bæði rosa dýrt og óumhverfisvænt. Sérstaklega sem íbúi á þessari köldu eyju minni 🙃
Mitt helsta vandamál þegar kemur að bókum er að ég ÞRÁI að sjá bíómynd um allar bækur sem ég les. Langar svo að sjá hvort aðrir ímyndi sér þetta eins, persónur, staði, aðstæður.
Fyrir þau ykkar sem eruð að horfa á Glamorous (æði btw), þá er Queen Kim Catrall 66 ára !!!
Lalli hélt þessir þættir hefðu verið á undan Sex and the city því skvís hefur bara yngst síðustu 20 ár🤌