Ég og Siðmennt erum svolítið sökuð um að verja of miklum tíma í að tala aðra niður og of litlum tíma í að tala okkur sjálf upp. Hið rétta er náttúrulega að fjölmiðlar hafa meiri áhuga á átökum en árangri. Í ljósi þess langar mig að monta mig af þessu:
https://t.co/CkV50JaDac
@Audurkolbra Er ekki starfsmaður en hef besta reynslu af Reima, einmitt hvað varðar lipurleik og hlýindi. Það eru þó misjafnar gerðir af þeim, misþykkir, en minn 4ra ára á mjög lipran og fínan þaðan.
Þetta er svo fallegt. Vandaðir skór ganga í endurnýjun lífdaga, vissulega dýrara en að kaupa nýtt skópar en munum að umhverfiskostnaður er ekki reiknaður inn í almennt verðlag. Handverk og hringrásarhagkerfið fara vel saman.
Ég veit þetta snýst ekki um mig eða fólk í minni stöðu, en mikið er lýjandi að búa við að stjórnvöld virði ekki mannréttindi. Reiðin, svefnleysið, sorgin og vanmátturinn sem fylgir því fyrir almennan borgara er lamandi og ekki beint til að bæta samfélagið okkar.