Eftir áramót (janúar-maí) falla niður 49 æfingadagar hjá krökknum í Laugardal vegna utanaðkomandi viðburða í Laugardalshöll.
Nenni ekki að heyra meira um að þau eigi að vera með aðstöðu í þjóðarhöll, það gengur ekki upp.
Ég held það þurfi sérútgáfu @hismid_hladvarp til að ræða þetta starf og hvernig millistjórnendaköttur úr Borgartúninu myndi plumma sig í því. Bara 40-50 mínútur takk!
Lygar Borgarstjóra um íþróttahús fyrir börnin í Laugardal sem hann gaf uppá sviði í hinum gegnmyglaða Laugarnesskóla á leið sinni á kjörstað síðast munu lifa næstum tveggja áratuga valdatíma hans.
Kjúklinganaggi sem keyptur var í bílalúgu festist á milli bílbeltis og fótleggs á 4 ára stúlku sem brenndi sig. McDonalds þarf að borga USD 800.000 í bætur vegna skorts á viðvörunum um að nagginn gæti verið heitur.
https://t.co/AmaSETbrHq
@BrynThor Enda sagði ég "nánast". Sem er rétt mv tíma og áreiti. Þeir dæma til dæmis meira og minna frítt á öllum vetrarmótunum á lengsta undirbúningstímabili heims.
Þetta eru allt menn sem fá laun, oft bara fín, frá íþróttafélögum fyrir að spila fótbolta. Þeir einu sem eru nánast í sjálfboðavinnu eru dómararnir. Og að þeim öskrar allur vel launaði mannbarnaskarinn alveg stanslaust.
https://t.co/zf0N1xZpWk
Líka vonbrigði fyrir þá sem ákváðu að leggja trúnað á tilgangslausar viljayfirlýsingar borgarstjóra daginn fyrir kosningar. Börnin í Laugardal verða áfram án inniaðstöðu í fyrirsjáanlegri framtíð, rétt eins og allan þann áratug sem hann hefur stjórnað.
Hér með er (Staðfest) að ríkið hefur ákveðið að svíkja loforð um nýja Þjóðarhöll 2025. Vonbrigði fyrir þau sem kusu Framsókn út á þetta loforð.
https://t.co/aKFogrob0d
Frábært að hann sé bjartsýnn. En hvað er að frétta af fjármögnun? Hvað á að gera þangað til fyrir krakkana í Laugardalnum? Hver verður svo lausnin þegar allir þessir tónleikar og viðburðir verða haldnir í nýju sýningarhöllinni? @visir_is@Dagurb@framsokn
https://t.co/KmMMBgSqya
Þetta er svo fáránlegt. Ný þjóðarhöll mun engu breyta. Börnin í Laugardal þurfa sitt eigið íþróttahús. Þau geta ekki verið gestir í einhverri þjóðarhöll lengur. Það er löngu fullreynt.
Bikarúrslit HSÍ hefjast á morgun og þá falla allar æfingar í Laugardalshöllinni niður. 16 æfingahópum í körfubolta hjá Ármanni hent út. Yfir 200 börn.
Frá áramótum hafa 32 æfingadagar fallið niður í Laugardalshöll.
@Dagurb@framsokn@ruvithrottir@PiratarXP@visir_is@mblfrettir
Yfir 40% af æfingadögum falla niður í Laugardalshöll á þessum vetri vegna viðburða eða framkvæmda. Laugardalshöllin dugar bara fyrir hluta af æfingatímum Ármanns og margir deila salnum á hverri æfingu.
Einn leikur hefur farið fram í Höllinni á vegum Ármanns í vetur.
Ástráður var svo fljótur að lenda þessu að það gat ekki annað verið en að hann hefði Lynchað þessar viðræður (Lyncha er skyrtan hneppt uppí háls + hátt hnepptur jakki eins & David Lynch)
Lúkk sem segir bæði ég er boss & passaðu þig því ég er alveg að fara yfirum. Power innkoma.
Mikilvægt að halda því til haga að þessir höfuðsnillingar gáfu út nýja plötu nánast í kyrrþey árið 2021. Þeir eru ekkert sérstakir í markaðssetningu! https://t.co/rc4jmSDqxe
Jæja @hismid_hladvarp bræður. Hættiði þessi skuespili. Það er fimm mánudaga janúar. Þið eruð búnir að selja upp nokkur live show útá að vera að "hætta." Tengiði míkrafónsmúrsteininn við rafstöðina og áfram hér!