Hádegishléið fór í að hlusta á sænska vini mína bera saman fídusa í snjallúrunum sínum sem þeir keyptu á námslánabudgetinu sínu. Ég smá bitur, segi ekki neitt, borða bara nestið mitt því námslánabudgetið mitt coverar ekki einu sinni mötuneitið í skólanum☹️
LÍN er svo næs,
Samt bara þegar maður
Hefur verið í ólaunuðu starfsnámi í ár fyrir nám
Býr í foreldrahúsum hluta af árinu
Á góða foreldra sem geta styrkt t.d. flug heim fyrir jólin
Og getur tekið námslokalán frá banka til að brúa bilið þegar allt klárast, mánuðum fyrir útskrift
Afhverju finnst Svíum Danir svona asnalegir? Er það kannski af því að þessar dönsku handþurrkur sem eru hér á nánast hverju einasta salerni eru alveg glataðar? Kannski.
Veit ekki alveg hvort ég fíla það svaka mikið að sitja hér ein á kaffihúsi að drekka kaffi og lesa blaðið eða að vera týpan sem situr ein á kaffihúsi, drekkur kaffi og les blaðið.