Enn eru aðilar að senda út svikapósta í nafni Póstsins til að komast yfir kortaupplýsingar. Gott er að hafa í huga að eini staðurinn þar sem þú getur greitt rafrænt af sendingum hjá okkur er í gegnum Mínar síður á vef Póstsins eða í gegnum appið. Hafið samband 👉 [email protected]
Pósturinn er fyrsta fyrirtækið á landinu til að nota rafmagnsflutningabíla og það er stórt framfaraskref fyrir okkur að nýta flutningabíla sem ganga fyrir rafmagni 🚚⚡
https://t.co/pssdLXMrwy
@Solvi_Fannar@Neytendasamtok@neytendastofa Hæ Sölvi, það sem olli þessum ruglingi var að fyrst var valið mixed contents þegar að þú skráðir sendinguna á netinu en skrifar svo yfir og velur gjöf eftir að fylgibréfið er prentað út. Það uppfærðist þess vegna ekki á rafræna fylgibréfinu sem er það sem við notum til að flokka.
@Jon_Gnarr Hæ, takk fyrir að láta okkur vita! Okkur þykir virkilega leiðinlegt að heyra þetta og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur valdið þér. Við höfum skoðað þetta tiltekna mál og erum að kanna hvað hefur farið úrskeiðis hjá okkur svo við getum lært af mistökunum.
@torii_96 Hæ Þórhildur. Takk fyrir að vekja athygli á þessu! Það er búið að brjóta grílukertin niður og við munum fylgjast vel með þessu og taka niður þegar þau byrja að myndast aftur 😊
@Swooper86 Hæ 😊 Takk fyrir að hafa samband. Við viljum bara vera alveg viss um að þú vitir að þú átt pakka hjá okkur, það kemur fyrir að fólk breyti um email eða símanúmer og gleymi að uppfæra upplýsingarnar. Til að fækka tilkynningunum getur þú alltaf slökkt á þeim í appinu ♥️
@maranomynet Hæ Már! Tekin var ákvörðun í september um að úrelda SMS frímerkin. Ákvörðunin er tekin út frá rekstrar og öryggisáhættu sem ekki er unnt að mæta sökum skorts á sérhæfðri þekkingu á kerfinu :)
@raggaagusts Hæ Ragga, við skiljum þig vel og þess vegna mælum við með því að nýta Póstboxin til að senda og taka á móti sendingum. Þau eru alltaf opin og þú getur græjað málin þegar þér hentar. Endilega sendu okkur DM ef við getum aðstoðað þig.