Óróinn á erlendum vaxtamörkuðum heldur áfram á meðan íslenskir langtímavextir standa óhaggaðir, mögulega vegna styrkra undirstaða í íslensku hagkerfi, þrátt fyrir innlenda óstjórn.
https://t.co/nhUgK1P5TI
Samanburður á fljótandi (Ísland) vs. fast (Evrópa) þegar munur fast vs. fast er minni.
Tvöfalt hærri verðbólga að jafnaði er íslenska lántakandanum í hag.
Vextir eðilega hærri hér v/ þrálátrar verðb. og meiri hagvaxtar en er ekki hægt að selja evruna án þessa óheiðarleika?
"They do at least suggest the possibility that Sweden is more or less inadvertently close to achieving herd immunity—and, even better, that the end of the COVID-19 pandemic for much of the rest of the world may also be nigh"
https://t.co/4g6fZRiYM8
Heiðrún Lind auðmýkir Kára Stefánsson en nær sennilega ekki að kenna honum neina auðmýkt. Vandamálið er að þegar menn telja samlanda sína undir meðalgreind sjá þeir ekki ástæðu til að vanda málflutning sinn og gengisfella sjálfa sig.
#DrambErFalliNæst
https://t.co/WPD37G4836
Þetta er dapurleg "framtíðarsýn" hjá @sjalfstaedis að spilla ímynd Íslands sem matvælaþjóð með að leigja Norðmönnum firði landsins til að hrúga upp úrgangi við framleiðslu á næringasnauðu og erfðabætti fisklíki og ógna um leið tilvist villtra laxastofna.
https://t.co/HLXRAVMesi
Góð spurning!
En finnst honum í lagi að pólitíkusar sem eru á móti ISK hafa enga reynslu eða menntun af stjórnun peningamála aðra en hafa sett á innflæðishöftin illræmdu á stuttum og snautlegum ferli sem fjármálaráðherra, sæki um embætti seðlabankastjóra?
https://t.co/AXpAA4MimH
Ef þú vilt ekki raforkusæstreng og notar fiskveiðar Íslendinga sem röksemd ættirðu að:
a) skipta um skoðun
eða
b) leggjast eindregið gegn fiskútflutningi og leggja til að allur fiskur sé nýttur til innlendrar atvinnusköpunar.
https://t.co/VnWI8XKZML
Finnið þrjár villur:
„Það er forsenda fyrir áframhaldandi uppbyggingu lífsgæða að eignarhald á auðlindum sé í samfélagslegri eigu og að við njótum öll arðs af nýtingu auðlindanna og getum ráðstafað okkar orku sjálf til uppbyggingar atvinnu hér á landi.“
Á 25 árum frá innleiðingu EES hefur útflutningur Íslands vaxið um samtals 167%. Árin 25 á undan jókst hann um 31%.
79% af þessum vöruútflutningi og 52% af þjónustuútflutningi fer til EES.
Barátta fyrir því að halda í þennan samning er augljóslega bara eitthvað sérhagsmunapot.🤯
@konradgudjons Efling trúir ekki hagtölum
Það er ekki hlutverk Eflingar að reikna út áhrif krafna sinna
Og nú segir Viðar að samkeppnisumhverfi komi Eflingu ekki við
Er ekki kominn tími til að miða baráttu félagsins við raunheima frekar en kenningar úr Róttæka Sumarháskólanum?
#EflingPhoneHome
"Ragnar Þór segir aðspurður þetta hluta af áróðri gegn launþegahreyfingunni."
Einmitt! Útsmogið plott hjá Seðló og SA að birta ársfjórðungslega könnun frá árinu 2002 til þess eins að geta komið höggi á Ragnar og co á aðventunni 2018.
https://t.co/T5D7pcSb81