@gunnlaj@einarjoh Beiðni um almenna þátttöku bæjarins hafði verið hafnað. Skólar Kópavogs hafa fast fjármagn frá bænum til kaupa á utanaðkomandi fræðslu sem við höfum ekki bein afskipti af. Við hlustum að sjálfsögðu á foreldra ef óánægja er með tiltekna fræðslu innan grunnskólanna.
@Stefan_Mani_ Kópavogsbær hefur ekki sem sveitarfélag samið við samtökin, og engin breyting orðið á því. Við erum með fræðslusjóð sem skólarnir sjálfir nýta. Það er í sjálfsvald hvers skóla sett að nýta sjóðina eins og þeir kjósa.
@steiniogdora@Sverrirhelga95 Kópavogsbær hefur ekki sem sveitarfélag samið við samtökin, og engin breyting orðið á því. Við erum með fræðslusjóð sem skólarnir sjálfir nýta. Það er í sjálfsvald hvers skóla sett að nýta sjóðina eins og þeir kjósa.
Þó það hljómi undarlega má segja að framboðsskortur á húsnæði í Reykjavík hafi bein áhrif á það hvort verðbólgumarkmið Seðlabankans haldi eða ekki. 🏗🏠📈
https://t.co/NtCXQxzr4M
Við áætlum, ásamt @atvinnulifid, að afkoma ríkissjóðs gæti versnað um allt að 250 milljarða króna ef tekið er mið af kosningaloforðum flokkanna. Það ætti ekki að koma á óvart þegar útgjaldaloforð eru fimmfalt fleiri en tekjuloforð.
Lesa greiningu:
https://t.co/Tlm6j92dHt
⚖️Jöfnuður⚖️ 1/3
Því er haldið fram að eignaójöfnuður hafi aukist. Umræða um jöfnuð er mikilvæg, en hún verður að vera byggð á staðreyndum:
Efstu 5% áttu 39% af eigin fé framteljanda á árinu 2020, 43,5% árið 2016, 51% árið 2011 -> eignajöfnuður hefur aukist, ekki minnkað
⚖️Jöfnuður⚖️ 3/3
Hvað með tekjujöfnuð? Vaxið undanfarin ár og er einn sá mesti í heimi – staðfest af alþjóðastofnunum, s.s. OECD. Af umræðunni mætti halda hið gagnstæða en tölurnar tala sínu máli👇
⚖️Jöfnuður⚖️ 2/3
Ef við berum saman við önnur ríki t.d.
🇩🇰 Í Danmörku: 46% (2019)
🇳🇴 Í Noregi: 40,5% (2018)
🇮🇸 -> merki um að eignajöfnuður er meiri á Íslandi
https://t.co/RfcyOPHCAC
Slæmt hvernig ítrekað er ruglað saman einkarekstri og einkavæðingu í fréttum. Vont fyrir málefnalega umræðu. Fáir ef nokkrir að ræða einkavæðingu í íslenska heilbrigðiskerfinu. https://t.co/xtlxgtBgXk
Það er mikill munur á einkavæðingu og einkarekstri en alltof oft er þessu ruglað saman, viljandi eða ekki. Hér er enginn að tala um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu þó svo einkaaðilar séu að bjóða hjúkrunarrými til afnota á Covid tímum. Sláandi frétt. https://t.co/9luaEWQDhZ
Árlegar launahækkanir á almennum markaði 8,5%, hjá ríkinu 14% og sveitarfélögum 19%. Er launakostnaður vanmetinn áhrifaþáttur verðbólgu? https://t.co/3r7hqMfR7b
@kjamanden@KristrunFrosta Atvinnuleysi er afleiðing sóttvarnaaðgerða. Fyrir Covid var hér 5% atvinnuleysi. Helmingur af þeim sem misst hafa vinnuna í Covid unnu í ferðaþjónustu og tengdum greinum. Atvinnugrein sem hvergi vegur þyngra í VLF (2019) og liggur nánast í dvala þar til faraldri lýkur.