Tímarit Máls og menningar er víðlesnasta menningartímarit Íslendinga, stofnað 1938. TMM kemur út fjórum sinnum á ári og heldur úti vef allan ársins hring.
Snædís Björnsdóttir @snaedisbjorns mætti í Víðsjá í gær til að ræða stórskemmtilega grein úr nýjasta hefti TMM þar sem hún fer yfir helstu strauma og stefnur í dönsku bókmenntalífi þessi misserin.
Við mælum með bæði hlustun og lestri 👉 https://t.co/Vl6mzeB9oj
God weekend 🇩🇰
Annað hefti ársins er komið út, stutfullt af skáldskap, greinum og bókarýni. 📚💫🙏🏻
Kápumyndin er eftir Sigurð Þóri og kallast á við grein Kristjáns Hrafns sem rýnir í Tímann og vatnið úr nýju sjónarhorni.
Bókadóma heftisins má finna á vef TMM: https://t.co/pHl7fDThzm
Matthías Johannessen ritstjóri og skáld lést fyrr í mánuðinum og endurbirtum við af því tilefni á vef TMM yfirgripsmikið viðtal sem Silja Aðalsteinsdóttir tók við Matthías um ljóðlist hans og birtist fyrst í þriðja hefti ársins 1996.🕯️
👉https://t.co/hVxQt1Z4CE
Ljóðskáldin @ilya_poet og @katiefar lesa upp úr verkum sínum og spjalla við Fríðu Ísberg, Brynju Hjálmsdóttur og @Isody um ljóðlistina í kvöld í Mengi.
Nokkur ljóð úr bók Ilya Heyrnarlaust lýðveldi, í þýðingu Aðalsteins Ásbergs, má nú lesa á vef TMM: https://t.co/F0euMj43jG
Fyrsta hefti ársins er farið til áskrifenda og mætir í allar helstu bókabúðir á hlaupársdaginn, 29. febrúar! 🍉
Kápuna prýðir að þessu sinni verkið Öryggissvæði: Eldur eftir @freyjaeilif 🙏
Nælið ykkur í eintak eða skráið ykkur í ársáskrift hér: https://t.co/nYo8b7rr6S
Leifur Reynisson sagnfræðingur ritaði áhugaverða grein um uppruna og þróun yrðingarinnar „blessað stríðið“ í þriðja hefti síðasta árs 🪖📰
👉https://t.co/GPe4i9xOoU
Við mælum einnig með nýlegum þáttum Leifs um Hernámsæskuna sem má nálgast í spilara RÚV:
https://t.co/ggh2GZKWxs
Í dag birtum við síðasta molann úr flóðinu að þessu sinni en það eru nokkur ljóð úr ljóðbók Hörpu Rúnar Kristjánsdóttur, Vandamál vina minna. 👏
Meitluð og áhrifarík ljóðabók sem tekst á við það hlutskipti að vera kona, að vera manneskja, að vera vinur.
👉https://t.co/DdTRl41lpK
Kristján Hrafn Guðmundsson gaf nýverið út ljóðsöguna Vöggudýrabær sem er átakanlegt uppgjör við fortíðina og reynslu ömmu hans og móður af vöggustofunum sem voru starfræktar í Reykjavík á seinni hluta 20. aldarinnar.
Hér má lesa brot úr upphafskaflanum
👉https://t.co/EDPMT5FD6T
Fjórða hefti ársins er komið út! ✨
Kápumyndin er stilla úr kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Volaða land, en Jóna Gréta Hilmarsdóttir fjallar um höfundarverk hans í efnismiklu og fjölbreyttu hefti.
Lesið meira og nálgist eintak hér👉https://t.co/7ytc2gtX6s
Ófeigur Sigurðsson hefur löngum sannað sig sem einstök rödd í íslensku bókmenntalífi. ✨
Ný skáldsaga hans Far heimur, far sæll, er spennandi frásögn af Kambsráninu þar sem hann leiðir lesanda í gegnum rannsóknina af húmor og óviðjafnanlegri stílsnilld.
👉https://t.co/3gB87FhxmA
Auður Jónsdóttir er einn vinsælasti rithöfundur landsins. Nýjasta skáldsaga hennar, Högni, fjallar um mann sem fer út af sporinu eftir erfiðan skilnað og þarf í kjölfarið að horfast í augu við sjálfan sig og um leið fortíðina.
Brot úr Högna má lesa hér:
https://t.co/D26rOAtxAm
Bergþóra Snæbjörnsdóttir sló eftirminnilega í gegn með fyrstu skáldsögu sinni, Svínshöfuð árið 2019. Mikil eftirvænting ríkti því fyrir útkomu nýjustu skáldsögu hennar, Duft, og hefur hún þegar fengið glimrandi móttökur. ✨👏⚡️
Brot úr verkinu má lesa hér: https://t.co/qOt6HKT5K6
Sigrún Pálsdóttir sýnir snilldartakta í nýjustu skáldsögu sinni Men - Vorkvöld í Reykjavík, sem má lesa kafla úr á vefnum:
👉https://t.co/dqLgIvZk13
Sigrún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. bókmenntaverðlaun ESB árið 2021 fyrir Delluferðina.
Eiríkur Örn Norðdahl hefur sent frá sér sögulegu skáldsöguna Náttúrulögmálin og er þessa daganna í feykilega metnaðarfullu upplestrarferðalagi um allt land með hana. 👏🚗📚
Eftirvæntingarfullir lesendur geta nú þegar nálgast brot úr bókinni á vef TMM.
👉https://t.co/cEaFoIjG85
Í næstu viku kemur út ljóðabókin Flagsól eftir @MelkorkaOlafs sem er listlilega myndsskreytt af @HlifUna, en þar fáum við að kynnast leyndarlífi íslenskra sveppa.
Ljóðið Ullblekil má nú lesa og skoða á vef TMM. 🍄
👉https://t.co/lGhGb1rxH5
Friðgeir Einarsson hefur vakið mikla athygli fyrir framgöngu sína bæði í sviðslistum og á ritvellinum undanfarin ár. Í byrjun nóvember kemur þriðja skáldsaga hans, Serótónínendurupptökuhemlar, út hjá @BenediktBooks og má nú lesa brot úr henni á vef TMM.
👉https://t.co/sHJ3ww4NUk
Þórdís Helgadóttir hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarin ár fyrir skrif sín. ✨
Á fimmtudaginn 19. október gefur @Isody út skáldsöguna Armeló en eftirvæntingarfullir lesendur geta nú tekið forskot á sæluna og lesið fyrstu kaflanna á vef TMM. 🙌
👉https://t.co/43BqBdrFkt
Hjörleifur Hjartarson birti tvö álfakvæði í síðasta hefti Tímaritsins sem nú má lesa á vefnum og á dögunum koma þau út í bókinni Álfar eftir Hjörleif og @RanFlygenring✍️🎨👏
👉https://t.co/Z9OJ56sxTc
@Angusturaforlag gefur út.
Hin óviðjafnanlega Silja Aðalsteinsdóttir er áttræð í dag! 🥳
Af því tilefni er viðeigandi að deila dómi hennar um Deleríum Búbónis í @borgarleikhusid, sem hún sá einnig árið 1959 og spáir þessari leikgerð engu síðri vinsældum og langlífi 👏✨🎭
👉https://t.co/hLEcAeju5W
Á komandi vikum mun TMM birta sýnishorn úr nokkrum nýjum skáldsögum úr jólabókaflóðinu á vefnum. 📖
Fyrstur út er @SverrirNorland með skáldsöguna Kletturinn sem kom út í byrjun mánaðar og hefur þegar vakið verðskuldaða athygli.
👉https://t.co/Oyp1CsfxF7