Ég var í allskyns tékki hjá sálfræðing og útkoman er sú að ég gæti verið einhverf. Veit ekki alveg hvernig mér líður með þetta enþá, en langar samt ekki að skammast mín. Svo hér er ég.
Ég er í endurhæfingu hjá þraut og í þessar 5 vikur sem ég er búin að vera er helvítis vefjan búin að vera á sterum er svo endlaust verkjuð dag eftir dag og það er svo erfitt að reyna vera jákvæð í svona langan tíma. Endaði á því að horgrenja hérna áðan bara því ég get ekki meir.
Gengum við ekki öll út frá því að Russel Brand væri kynferðisafbrotamaður? Það er eitthvað við óvirka alka sem hverfa úr fjölmiðlum og byrja með gjörsamlega nötts youtube-rás sem bara öskrar það
Margt af þessu fólki sem dreifir þessum ógeðslega áróðri þessa dagana er einfaldlega illa innrætt, pössum að leyfa þessu ekki að líðast á bakvið “fáfræði”. Besta vopnið er að leyfa þessu fólki að skammast sín því samtal skilar engu, þau vilja bara meiða.