@feitur Kemur rigning ef þú drepur járnsmið. Rigning ef þú skilur hrífu eftir öfuga á grasi. Botnlangabólga ef þú borðar poppmaís sem náði ekki að poppast.
Takk fyrir að deila!
Ég labba í og úr vinnu, tek rafskutlur og hjóla flest. En heimilið rekur líka bíl sem er að gefast upp. Við erum að velta fyrir okkur vetrinum og ein hugmynd er að leigja sparneytinn smábíl og fjárfesta síðan í 2 rafmagnshjólum í vor. En þið?
Góð þjónusta hjá póstinum:
Starfsmaður: Þú átt að greiða 5.090 kr
Ég: Hvað er ég að borga fyrir?
Starfsmaður: Þetta gjald, þetta gjald, þetta gjald etc
Ég: Og hvaða gjöld eru þetta?
Starfsmaður: Ég veit það ekki, það bara stendur hérna!
Sonur: "Af hverju erum við að páskaskreyta, það má enginn koma hingað?"
Ég: "Ég er bara að skreyta fyrir okkur!"
Eiginmaður: "Ég laga til bara fyrir mömmu ykkar!"
Sonur: "Líka ég!"
Dóttir: "Líka ég!"
🤣🤣🤣
Ég er nú #daðioggagnamagnið fan en þegar ég nefndi (nú) 6 mánaða dóttur mína Áróra Björt hafði ég ekki hugmynd um að (nú) 10 mánaða dóttir Daða og Árnýjar héti Áróra Björg... Ég lofa! 🤣
Ég þarf að taka upp hugarfar 5 næstum 6 ára dóttur minnar:
Jó í morgun: "vá mamma þetta er svo geggjaður dagur, þetta er örugglega besti dagur lífs míns!" á venjulegum miðvikudegi.
Ég: "já hann er örugglega ágætur🧟♀️😴" #viðhorfið
Er svo mikið að upplifa atriði úr áramótaskaupinu. Fitbittið mitt dó og hvernig í ósköpunum á ég að vita hvað ég er búin að fara mörg skref í dag? Hvað eru almenn heimilisstörf með ungabarn í heilan dag plús 30 mín hlaup ca mikið? 10.000? 6.000? 12.000? Ekki græna glóru 😱😱🤣🤣
Gaman að vita hvað börnin manns vita um mann... 5 ára dóttir mín er byrjuð að lesa og æfir sig mikið þegar við erum að keyra.
Vorum að keyra niðri í bæ:
Hún: " sss jj aaaa ll ll i nnn? Sjallinn!
Já pabbi hefur oft farið þangað! Sko mjööög oft! 🤣
Hitti 2 unglingsstráka í ICELAND að kvöldi:
Unglingsstrákar: "hey megum við aðeins spyrja, áttu heima í Naustahverfi?"
Ég: "uhh já af hverju spyrjiði, vantar ykkur far?"
Unglingsstrákar: "nei bara af því þú ert með Louis Vuitton trefil!"
#snob