Síðasta vikan af átta í sólarparadísinni Málaga og það er ekki laust við að ég sé að fá nett taugaáfall við tilhugsunina um að koma aftur í íslenskan raunveruleika. Lífið hér er svo einfalt og gott...
Hey #writingtwitter. After a creative slump that lasted a few years my need to write is back. I need some suggestions on how to direct that creative energy - are there any communities, workshops, books, prompts, whatever, that helped you get going again after a while? #amwriting
Eftir 6 vikur á sólarströnd þar sem hefur ringt samtals í ca 3 klukkutíma og hver einasti dagur er ævintýri, langar mig bara heim til Íslands til að leggja mig á uppáhalds sófanum mínum með teppi og te.
Ég labbaði* 10 km í dag í 38 stiga hita og með versta þursabit sem ég hef upplifað. Finnst eins og ég eigi að fá fálkaorðu eða eitthvað fyrir þetta afrek.
*labbaði er örlátt. Segjum kjagaði.
Er á Spáni að læra spænsku. Geri í því að tala bara spænsku alls staðar og get vel gert mig skiljanlega. Er ítrekað svarað á ensku þótt ég haldi áfram að svara á spænsku. Þetta er ÓÞOLANDI! Hættið að svara fólki á ensku sem talar íslensku með hreimi!
Einu sinni vann ég við að sitja úti á svölum á kínverskum veitingastað til að láta líta út fyrir að það væru einhverjir gestir á staðnum á milli þess sem ég fór út að veiða gesti. 10 evrur �� kvöldi, nóg fyrir bjór og pizzu 😄
Ég veit ég gæti tæklað þetta með því að velja bara eitt alþjóðlegt nafn og nota það alltaf, eins og sumar Asíuþjóðir gera, en ég virðist ekki hafa brainpower í það. Fólk notar nýja nafnið óspart og ég gleymi að það sé ég. 🤦♀️
Að heita Auður í útlöndum er mega vesen. Gefið börnunum ykkar amk eitt alþjóðlegt nafn.
Man aldrei hvort ég pantaði kaffidrykk undir nafninu Molly eða Sally. Skóla/vinnufélagar sem forðast að tala við mann af þeir vilja ekki bera nafnið manns rangt fram...
@Pabl0Blanc0 @minxlj@IheartReykjavik Been to both Ronda and Granada twice but might go again 😊 It's the lobster look I'm trying to avoid but seeing that I'm Icelandic and have skin like a ginger (even though I have dark hair and features) that's probably unavoidable. Oh well 🦞
Ekki nóg að hann sé að njóta sín og bonda við vinnufélagana heldur bannaði hann mér líka að horfa á síðasta Last of us þangað til hann kemur heim. Þetta eru náttúrulega bara pyntingar.
Vitiði hvað er verra en að vera eins og fjólubleikur blettatígur af útbrotum, einn heima með Covid? Að vera eins og fjólubleikur blettatígur einn heima með Covid og fá updeit á 20 mín fresti um allt það geggjaða sem eiginmaðurinn er að gera í "vinnuferð" í Barcelona
@unastef Tengi mjög hart. Fór tvisvar á bráðamóttökuna í síðustu viku með það sem reyndust Covid einkenni. Er einmitt búin að vera veik samtals 10 vikur síðustu 7 mánuði síðan ég fékk Covid fyrst. Varð aldrei veik fyrir það.
Ég er ekki að segja að það sé aðeins of mikið að gera á bráðamóttökunni en hérna er ég búin að liggja í 16 klukkutíma, þar af er ég búin að bíða í rúma 7 tíma eftir að það sé tekin blóðprufa svo ég komist heim (til að koma aftur í fyrramálið). Búin að fá mjög góða þjónustu samt.
Var samt heppin og var hent í einangrun þannig að ég er búin að vera með rúm og einkaherbergi í þessa sjö tíma, ekki á ganginum eins og margir. Fólkið sem vinnur hérna á skilið 17 stöðuhækkanir.