Hvíldu í friði Bryndís Klara🕊️
Í þremur leikjum í kvöld var leikur stöðvaður á 17. mínútu til þess að minnast hinnar sautján ára gömlu Bryndísar Klöru sem lést af sárum sínum síðastliðið föstudagskvöld.
Besta deildin vottar fjölskyldu og aðstandendum samúðar.
#bestadeildin
Við kusum 260.000 sinnum. Ef hvert atkvæði kostaði 169 krónur þá mokuðum við 44 milljónum í þetta. Ég vona að áfallateymi Rauða krossins sé komið heim til Ásgeirs seðlabankastjóra.
Magnað að sjá í kommentum hvað margir karlmenn hafa ENGAN skilning á þriðju vaktinni enda hafa þeir líklega aldrei þurft að standa þá vakt. Þakka fyrir þessa umræðu og vil sjá hana tekna lengra!
4 ára Andrinn okkar er á vellinum að horfa á pabba sinn sem hann lýtur mjög upp til. Sem betur fer skilur hann ekki hvað verið er að syngja um hann en þetta er ógeðslega ljótt og á ekki heima neinsstaðar.
Í dag brosti ég út í annað þar sem ég stóð og bakaði vöfflur fyrir barnið sem ég átti aldrei að geta eignast, og vini hans, sem ég þorði aldrei að ímynda mér, í húsinu sem ég hélt ég myndi aldrei ná að kaupa, nýkomin með stöðuhækkun sem ég hélt að ég ætti ekki skilið.
🤯
Til starfsmanns í grunnskóla sem ég var í sem barn, sem sagði að ég væri of vitlaus og löt til að geta lært eitthvað mikilvægt; Í dag útskrifaðist ég með fyrstu einkunn í BA í lögfræði í HR. 🥂 Mig vantaði bara aðstoð vegna lesblindu og ADHD, ég var ekki löt né vitlaus 😉
Djöfull ber ég mikla virðingu fyrir konum! Ég var á tónleikum núna í kvöld og það var gripið í rassinn á mér (Ég er með sítt hár) Ég snéri mér við um leið og spurði hann hvað í andskotanum hann væri að gera. Hans svar var “Æj sorry, ég hélt að þú værir kona” 1/2
PSA. Það að vera sjálfhverfur og koma illa fram við fólk þýðir ekki endilega að fólk sé narcissistar, þó að það sé eitt af greiningarviðmiðunum. Það er stundum hægt að vera sjálfhverft fífl án greiningar.
@gislimarteinn Ég er reyndar gallharður feministi en hef heyrt of mikið um skítlega hegðun viðkomandi til að verja bara afþví framlag viðkomandi hefur gert baráttunni gott. Þetta er ekki spurning um eitt óuppgert persónulegt mál....
Við báðum bæði að Edda myndi borga okkur út. Svarið var það að okkur var hent út af öllum aðgöngum (m.a. Patreon sem innihélt allar tekjur) áður en uppgjör átti sér stað og Edda yfirgaf sameiginlegt spjall
Ég sé að margir eru farnir að tjá sínar skoðanir á píp testi. Hef séð margar ólíkar og fjölbreyttar skoðanir. Til þess er leikurinn gerður og allir hafa rétt á sinni skoðun. Hér er mín.