Stjórnmálafræðingur, grúskari, fréttafíkill, bókaormur, feministi, matargat & nammigrís - með sérlegan áhuga á sögu, fólki, forsetum og fleiri fyrirbærum.
@einasig@arihro Ég gæti vel hugsað mér að versla oftar í Prís ef búðin væri staðsett einhvers staðar á leiðinni úr póstnúmeri 108 í 107. Reyni að fara sem sjaldnast í matvöruverslanir og síst á frídögum. Vil fara á leið heim úr vinnu og alls ekki keyra aukakrók í annað bæjarfélag.
@Stefan_Mani_ Sko, ég elska bókabúðir en er að reyna að minnka bókakaup fyrir sjálfa mig. Bóksala stúdenta er í uppáhaldi (oft betri verð en annars staðar) en af gömlum vana fer ég líklega oftast í Eymundsson í Austurstræti.
@GunnarAndreasK Hún nennir greinilega bara að vera í stjórnarandstöðu ef hún er formaður Sjálfstæðisflokksins. Reyndar finnst mér fáranlegt að „geyma” þingmennsku til að sinna öðru á meðan. Eðlilegra að segja af sér bara.
Það pirrar mig að Landsvirkjun ætli að byggja höfuðstöðvar á lóð sem væri tilvalin til íbúðauppbyggingar. Er ekki nóg af lausu atvinnu- og skrifstofuhúsnæði sem þetta fyrirtæki getur nýtt sér? 🤷♀️
@kristjanvalur Ég held að það sé alveg hægt að byggja huggulegar blokkir þarna. Það þarf ekkert að vera eitthvað alveg út að götunni. Sl. ár hefur verið byggt mjög nálægt þungum umferðaræðum. Td á Byko reitnum við Hringbraut, nýjasta blokkin á Hlíðarenda ofl.
@andresjons Var viðtalið ekki bara upptaktur að framboði Guðrúnar Hafsteins? GÞÞ sagði eitthvað á þá leið að fólk sem væri aðalleikendur í átökum fylkinga sl. ár ætti að halda sig til hlés (ekki orðrétt). Guðrún ætti að tikka í það box og GÞÞ líklegur til að styðja hana?
Það er kostulegt að Dagur hafi talið sig eiga erindi í þingflokksformennsku. Stór partur af því starfi er að svara fyrir erfið mál og útskýra í fjölmiðlum. Eitthvað sem hann hefur alltaf forðast.
Þó árangur Ingu Sæland sé eftirtektarverður og merkilegur þá reynir fyrst núna virkilega á hana. Hrokafull og ómálefnaleg svör við eðlilegum spurningum í Sprengisandi áðan lofa ekki endilega góðu.
@andresjons Mikið afrek hjá henni að komast í ríkisstjórn. Fyrir sjö árum var hún öryrki án atvinnu með veika fjárhagsstöðu eins og hún hefur sjálf sagt, án þess baklands og tengslanets sem stjórnmálafólk hefur oft byggt upp árum saman áður en það er kosið á þing.
@BrynThor Sko Ragnhildur Helgadóttir var ráðherra frá 1983-1987. Jóhanna Sigurðardóttir varð félagsmálaráðherra 1987 og síðan hefur alltaf verið amk ein kona í ríkisstjórn. Það má kannski segja að síðasta kvenmannslausa ríkisstjórnin hafi verið ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen 1980-1983.
@svansson Það gæti orðið töluverð gagnrýni frá hægri á Viðreisn. Áslaug Arna, Snorri Más, Sigríður Andersen, Hildur Sverris og Diljá Mist gætu orðið hörð í stjórnarandstöðu.
@erlendur@SigurborgOsk Meikar heldur ekki sens að Ingvar verði ráðherra en ekki María Rut. Meikar heldur ekki sens að Viðreisn fengi bæði utanríkis og fjármálaráðherra.