Í tilefni af umræðu um matvælaverð er ágætt að rifja þetta upp. Vörur sem njóta tollverndar eru dýrar fyrir neytendur, dýrar fyrir skattgreiðendur, eða bæði. Vörur án tollverndar standast aftur á móti vel alþjóðlegan verðsamanburð.
Besta leiðin til að lækka matvælaverð er að afnema tolla á mat.
Samskipti við Skattinn um 35% endurgreiðslu VSK.
Fæ 7 daga til að svara. Embættið gefur sér síðan 19 daga til að senda mér eina línu um að gögnin séu ekki „viðundandi“.
Ekki beinlínis hvatning til að gera hlutina uppi á borði.
Þetta er ekki árgangagreining og því er skekkja í hlutfalli hvers og eins skóla vegna breytilegra stærða árganga. Það breytir því ekki að mynstrið fyrir alla 43 skóla er skýrt og niðurstaðan sú sama ef árgangagreining væri birt af ráðuneytinu.
Skólastjóri Fellaskóla sagði um þessar tölur að samsetning nemendahópsins skýri lágt hlutfall þar og nefndi fjölda nemenda með erlendan bakgrunn sem lykilástæðu. Hann er því meðvitaður um stöðuna og afneitar ekki vandanum.
Við birtum tvær myndir upp úr nýjum gögnum menntamálaráðuneytisins í vikunni sem sýna verulegan mun á námsárangri eftir grunnskólum og ósamræmi í einkunnagjöf á milli skóla.
Viðbrögðin voru fyrirsjáanleg. Verjendur kerfisins halda áfram í afneitun, véfengja gögnin og sjá ekkert að fyrirkomulagi þar sem börn búa við ójöfn tækifæri eftir búsetu.
Ég svaraði þeim í grein á Vísi í dag:
https://t.co/VeW6NqMa8C
Mér þykir afar vænt um þessa viðurkenningu sem hagfræðingur ársins frá Félagi viðskipta- og hagfræðinga.
Minn ferill hefur verið svolítið óhefðbundinn, frá frumkvöðlastarfi og uppbyggingu hugbúnaðarfyrirtækja yfir í störf á vettvangi efnahags- og samfélagsmála hjá Viðskiptaráði. Þótt verkefnin hafi verið ólík hefur drifkrafturinn alltaf verið sá sami: að skilja hlutina betur, skapa eitthvað sem skiptir máli og miðla hvoru tveggja til annars fólks.
Ég hef líka verið heppinn að fá að vinna með framúrskarandi fólki. Svona viðurkenning er aðeins möguleg með farsælu samstarfi og traustu baklandi. Ég er því sérstaklega þakklátur samstarfsfólki mínu, meðstofnendum, vinum og fjölskyldu.
Ég lít á þetta sem hvatningu til að halda áfram að leggja mitt af mörkum og gera gagn.
Mætti til Gunnars Smára á Samstöðina og fórum þar m.a. yfir vöruverð á Íslandi, heilbrigðis- og menntamál, skattkerfið og samkeppnismál. Viðtalið á Spotify: https://t.co/jPOpSKQB53
♻️Sorpþjónusta hefur hækkað tvöfalt umfram verðlag og mest af kostnaðarliðum sem tengjast rekstri húsnæðis. Gæði þjónustunnar fylgja þó ekki alltaf eftir þrátt fyrir örar tækniframfarir sem hafa skapað aðstæður fyrir fjölbreyttari lausnir og meiri samkeppni.🧵
Framboðin í Reykjavík hafa ólíka afstöðu í mörgum lykilmálum. Þetta kemur fram í svörum allra 11 framboða við 30 spurningum Viðskiptaráðs í sex málaflokkum.