@Arnorhe@erlendur@RUVfrettir Ég er ekki að taka afstöðu með þessari málvenju. Ég er aðeins að benda á að hver einasta manneskja sem talar íslensku skilur þetta á sama máta. Hér er ekki verið að fría ökumenn ábyrgð.
@Arnorhe@erlendur@RUVfrettir Ef ég ætti að greina það sérstaklega þá er það væntanlega vegna þess að það hægt að aka á hjól án þess að það sé einstaklingur á hjólinu. Það er hins vegar ekki hægt (styttist samt óðum í það!) að aka bíl á hjól án þess að það sé maður í bílnum.
@erlendur@RUVfrettir "Af hverju er þá bílstjórinn skrifaður út úr fréttinni eins og hann hafi ekki verið þarna?"
Af því að þetta er málvenja. Þér má finnast hún asnaleg en hún er til og allir skilja hana á sama máta.
@erlendur@RUVfrettir Það liggur í hlutarins eðli að einstaklingur var að aka bílnum. Sennilega verður þetta vandamál þegar sjálfakandi bílar fara um götur Íslands en í dag segir þetta sig sjálft.
Þessir tveir þá héraðsdómarar, Ingimundur Einarsson og Benedikt Bogason samþykktu ALLTAF allar beiðnir Embættis sérstaks saksóknara um hleranir á bankamönnum. Og það á mjög hæpnum lagaforsendum. Nú eru upptökurnar farnar á flakk. Þetta hefur og mun stórskaða réttarkerfið. FAFO!
@feitur@erlendur Það var þannig í mörg ár. Mér skilst að það hafi verið afnumið svo að leigubílstjórar sem lenda í töfum (t.d ef það er umferðarslys) haldi áfram að græða.
Almennt séð legg ég ekki í vana minn að tjá mig um aðra fjölmiðla en þá sem ég vinn á en þegar hæstaréttarlögmaður tjáir sig með þessum hætti þá bara verð ég.
Möguleikarnir eru:
1. Hann einfaldlega veit ekki betur
2. Hann er vísvitandi að ljúga
Ég veit ekki hvort er verra
Í raun er notkun RÚV á „fact checker” ólögleg, þar sem RÚV er með því að útvista ritstjórn. Ritstjórnin er því ekki lengur sjálfstæð og óháð, ef utanaðkomandi aðilum er falið að meta og segja til um hvað er satt og rétt. Einnig reiðir RÚV sig á erlendar fréttaveitur eins og Reuters og AP, og miðlar fréttum frá þeim án þess að neitt sjálfstætt mat sé lagt á inntak þeirra. Þetta er allt saman brot á lögum um RÚV, sem gerir kröfu um sjálfstæða ritstjórn.