Það er þetta með öpp og aðganga. Nú vill Twitter appið ekki lengur samþykkjar mig, búin að prófa að henda appinu út, setja það aftur upp og skrá mig inn en ég fer alltaf í frost... Einhver sem hefur reynslu af þessu?
D12: Markmið mitt fyrir komandi ár er að mæta þeim áskorunum og breytingum sem bíða mín, bæði í vinnu og einkalífi, með jákvæðni, gleði og opnum hug 😉 Ég ætla að massa næsta ár 💪 #12dagatwitter#menntaspjall
Gleymdi degi 11 í gær! Bæti úr því í dag. Vinnufélagarnir eru það dýrmætasta í minni vinnu 🥰 og teymið mitt skipar þar stóran sess #12dagatwitter#menntaspjall
D10 #12dagatwitter Mér hefur aldrei gengið vel að muna það sem fólk segir mér og hef því ekki hugmynd um hvort ég hafi náð að tileinka mér einhver heilræði sem aðrir hafa gefið mér 😅En eitt man ég (því ég skrifaði það hjá mér) "ekkert barn er erfitt en það getur átt erfitt" (HÞ)
D9: Áhugasviðsvikan okkar í Grunnskólanum austan Vatna er eitt af mörgu sem ég er stolt af. Þá velja nemendur hvað þeir vilja læra og er raðað í námshópa eftir áhugasviðum og því verður aldursblöndun mjög fjölbreytt. Skapandi og skemmtileg vinna alla daga 👌 #12dagatwitter
D8: Eftir Utís heimsæki ég Twitter daglega en hér er ógrynni af skemmtilegu efni og hugmyndum, að ógleymdum öllum hugmyndaríku kennurunum sem sýna verkefni, bækur, vefsíður, öpp og bara alls konar...
...og svo hef ég skoðað https://t.co/kuNJmGlBNw mikið undanfarið #12dagatwitter
D5 í #12dagatwitter#menntaspjall var að koma heim eftir vel heppnaða haustskemmtun í skólanum mínum. Um helgar finnst mér endurnærandi að taka á líkamlega, t.d. með gönguferðum, hlaupum, zumba, skógarhöggi eða skíðum. Þessa helgina stefnir í snjómokstur 👌
D4: þrátt fyrir að ég hafi tineinkað mér að nota Calendar þá gæti ég ekki klárað heilan vinnudag án þessarar elsku...sem minnir mig á að það styttist í nýtt ár!!! Ég þarf að fá mér nýja dagbók 😅 #12dagatwitter#menntaspjall
D3: Hæ @hhalld3 ef ég man rétt spilaði ég fingrastærðfræði við þig á utís. Er fullviss um að ég hefði unnið ef við hefðum fengið að klára leikinn 💪 #12dagatwitter
D2: hef verið að nota iMovie og Google Slides til að búa til leiðbeiningar í textílmennt sem ég deili með nemendum á Google Classroom. Heyri nafnið mitt kallað mun sjaldnar í tímum eftir að ég byrjaði á þessu #12dagatwitter#menntaspjall