Eruði að lesa e-ð gott? Er að lesa Strendinga eftir Yrsu Þöll & las fyrr á árinu Armeló eftir Þórdísi H, Aksturslag innfæddra eftir Þórdísi G, Kjöt eftir Braga Pál, Duft eftir Bergþóru & DJ Bamba eftir Auði Övu, langar ekki að skemma streak af góðum bókum 2024 (takk fyrir mig)🥹
elska að segja alltaf bara „jájá, ok, ég skil þig“ við iðnaðarmenn sem eru að útskýra fyrir mér hvað þeir eru að gera eins og ég skilji eitthvað hvað þeir eru að gera
Akureyri og Grindavík eru bestu bæir landsins út af því að þar er langbesta vegan bakarísgame-ið í gangi, hef ekki fleiri skoðanir árið 2023 takk fyrir mig
Sum eru svo mikil intellectuals að þau ætla að bíða með að taka afstöðu þar til allir eru dauðir. Og segja svo: það bendir allt til þess að hér hafi verið framið þjóðarmorð.
—-
Það er ekki nægur tími fyrir svona fjas.
Horfið á þetta, hlustið á hvað leiðtogar Ísrael segja. Þau vilja þurrka Gaza út af kortinu. Útrýma fólki. Ekki orð um Hamas, enda skiptir Hamas engu máli. Bara hentug afsökun. Þau eru að segja okkur nákvæmlega hvað vakir fyrir þeim: Þjóðarmorð.
er ekki grillað hvað Rás2 er í miklu eftirpartístuði á morgnana um helgar? bara já það er líklegra að fólk sé í eftirpartíi að hlusta á útvarp allra landsmanna upp úr sjö en að það sé vaknað til að hugsa um börn eða græja sig á morgunvakt, veðjum á teknóið, góður fundur guys
Týpa dagsins er gæinn sem bað um súpu dagsins án þess að opna matseðilinn, var sagt að það væri engin súpa á þessum stað, var boðið að opna matseðilinn, afþakkaði það pent og pantaði sér pepperónípizzu.