Habemus papam. Leó XIV. Fyrst þeir gátu ekki kosið Trump, þá kusu þeir kaþólska Kanann Prevost. Trump hlýtur að taka kredit með einhverjum hætti #páfakjör
Við sitjum ss uppi með "hreint lak" fyrir clean sheet og nú "háu ljósin" fyrir highlights. Eru íþróttafréttir "versta lóðin" af þeim öllum? #raskogJónas#erégorðinnEiður#theworstlot
Kannast Tottenham menn við að missa 2 menn af velli og spila 9 við 11, vera ósáttir við dómgæslu, fá mark dæmt af og tapa svo leiknum þrátt fyrir hetjulega baráttu? #karma#ynwa#fotboltinet
Hugsið ykkur hvað tíminn er afstæður. Bítlarnir störfuðu í 10 ár og gáfu út 213 lög, öll ódauðleg, 211 þeirra algjörlega tímalaus snilld. Rolling Stones hafa hins vegar starfað í um 60 ár og eiga tvö góð lög...
Nú undir lok júlí eru 48 ár síðan ég byrjaði að safna frímerkjum. Ég ákvað að halda upp á tímamótin með því að kaupa mér nýtt frímerki í safnið og gerði það í gær. Nú á ég tvö frímerki.
Í stað þess að æfa, borga stórfé í æfingagjöld og etja svo kappi við þá bestu, er mun ódýrara og fyrirhafnarminna að kaupa bikara með áletrun.Keypti mér einn og n��na er ég "Íslandsmeistari í þolfimi 1985." Hann sómir sér vel við hliðina á "Norðurlandameistari í þríþraut 1988".