@Stefan_Mani_ Allir pólitíkusar hugsa númer eitt um sjálfs sig, númer tvö um flokkinn sinn, númer þrjú um "vinveitt" öfl og restin má éta það sem úti frís.
Það má deila þessu:
Aþena er að vaxa og sannleikurinn er sá að sjálfboðaliðarnir okkar duga ekki lengur einir til að halda þessu gangandi. Fyrir utan það að vera komin með meistaraflokk í úrvalsdeild og vera að byggja upp félag frá grunni í pólitísku umhverfi sem fyrirlítur svona frumkvæði og aðferðir eins og Aþeningar hafa sýnt, þá þurfum við nú að ráða þjálfara og starfsmann svo við getum haldið áfram að ná til stelpna í hverfinu — og þá er ég sérstaklega að tala um villikisurnar.
Villikisunum fylgir mikil vinna. Það fer gríðarlegur tími og mikil orka í að ná verst stöddu kisunum inn í starfið. Svo þegar þær treysta sér til að æfa í metnaðarfullu umhverfi 3–4 sinnum í viku, þá þarf ekki bara að borga með þátttöku þeirra, búnaði, ferðum og öðru sem fylgir því að vera með í íþróttum. Þær þurfa líka utanumhald, eftirfylgni, samræður eftir æfingar og fólk sem sér þær, sinnir þeim og gefst ekki upp á þeim.
Margar þeirra eru ekki með sterkan félagslegan eða fjárhagslegan stuðning á bak við sig. Þá verður starfið miklu stærra og orkufrekara en körfubolti. Þá erum við ekki bara að þjálfa körfubolta. Við erum að grípa stelpur áður en kerfið þarf að grípa þær seinna.
Það kemur nákvæmlega enginn raunverulegur stuðningur frá borginni, þrátt fyrir að hún viti vel hver staðan er — og viti líka að starf eins og Aþena getur sparað hinu opinbera hundruð milljóna til lengri tíma litið. Já, þú heyrðir rétt. Hundruð milljóna.
En í borg þar sem virðist vera sama um veikustu og yngstu raddirnar, þá verðum við borgararnir sjálfir að fara í verkið. Þess vegna býð ég þér á ókeypis örnámskeið þar sem ég ætla að kynna fyrir þér heimsklassa námskeið og þjálfun sem hundruð Íslendinga hafa sótt síðustu 15 árin hjá fyrirtækinu mínu, Key Habits. Í dag nota ég innkomuna af þessum námskeiðum til að fjármagna starf Aþenu.
Og nú er kominn tími til að bæta í. Við ætlum ekki að bíða eftir kerfinu. Við ætlum að byggja þetta sjálf. Fyrir ungafólkið. Fyrir villikisurnar. Fyrir 111 RVK. Fyrir framtíðina.
https://t.co/K0red22xJu
@gauiarna@valurhandbolti Frábær leikur og frábær lið.
En að öðru, takk Gauji fyrir að hafa lagt hluta af veginum sem ég fékk að ganga sem handboltamaður❤️
10 years ago today, I lived every boy’s dream in a Red shirt.
Scoring against Borussia Dortmund in the Europa League at Anfield — the lights, the noise, the Kop roaring as we fought back in one of the greatest European nights this club has ever seen.
That goal, that moment, that Liverpool shirt… it’s etched in my soul forever.
Still gives me goosebumps. Thank you to every teammate, every fan, and everyone who made that night magic.
This one’s for the memories that never fade. ❤️ You’ll Never Walk Alone
Good luck tonight LFC. BELIEVE!
"When Denmark cut the amount of welfare that asylum seekers could access, the amount of asylum applications went down by 71%."
"These people are not coming to your country because they're getting persecuted. They're coming for your tax money."
Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar?
Verði niðurstaðan í þjóðaratkvæðinu í sumar „já“ hefst í kjölfarið aðlögun Íslands að öllu regluverki Evrópusambandsins og stjórnsýslu þess strax í september.
Þetta kemur ekki aðeins fram í öllum gögnum ESB heldur einnig í sjálfri greinargerðinni með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðið þó hún hafi haldið því fram að einungis yrði um einfalt kaffispjall að ræða. Þar segir:
„Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“
Kjósendur fá ekki að koma að málinu og kjósa um samning verði niðurstaðan „já“ fyrr en þetta verður orðinn hlutur.
Það væri ekki verið að kíkja í pakka, pakka sem allir vita hvað er í. Heldur væri byrjað að aðlaga og breyta lögum okkar, regluverki og stjórnsýslu samhliða viðræðum. Í spurt og svarað á veg ESB segir til dæmis:
„Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“
Það er einnig mat ESB að íslensk stjórnsýsla sé of veikburða og hana þurfi að stórauka samhliða aðlögun frá september 2026. Þenja báknið út.
Ekkert umsóknarríki hefur fengið varanlegar undanþágur frá regluverki ESB til dæmis með tilliti til landbúnaðar og sjávarútvegs.
Hægt er að semja um aðlögunartíma en engar varanlegar undanþágur frá yfirstjórn ESB hversu oft sem utanríkisráðherra heldur öðru fram.
Fyrri kynslóðir Íslendinga börðust með kjafti og klóm fyrir fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar, mestu gersemum hverrar þjóðar. Valdinu til þess að ráða eigin málum.
Því vill ríkisstjórnin kasta á glæ.
Helgi Hallvarðsson og Albert Jónsson, skipstjórar á varðskipum Landhelgisgæslunnar, gátu í krafti þess að Ísland er fullvalda ríki barist gegn ofureflinu með togvíraklippur einar að vopni í Þorskastríðinu. Hvað myndu þeir segja um blæti ríkistjórnarinnar fyrir því að selja fullveldið og sjálfstæðið til erlends ríkjasambands?
Hvað hafa ríkin í ESB okkur að bjóða? Okkur sem erum ein ríkasta þjóð Evrópu, með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin og fleiri tugi fríverslunarsamninga við ríki um allan heim, bæði á eigin vegum og í gegnum Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA)?
Í Þýskalandi er raforkuverð um fimm sinnum dýrara en á Íslandi og efnahagsleg stöðnun hefur ríkt lengi eins og víða innan ESB.
Í Frakklandi fer um 14–15% af allri landsframleiðslu í lífeyriskerfið, eitt hæsta hlutfall í heimi, ríkisskuldir eru yfir 110% af landsframleiðslu og atvinnuleysi ungs fólks um 17–18%.
Á Spáni er nær þriðja hver ung manneskja atvinnulaus. Um 70% ungs fólks býr enn í foreldrahúsum þrátt fyrir lægri vexti en á Íslandi enda húsnæði í Evrópu dýrt, atvinnuleysi mikið og laun lág.
Lágir vextir í Evrópu eru ekki merki um sterkt hagkerfi heldur oft merki um hagkerfi sem þarf stöðugt á örvun að halda.
Er það þetta sem við viljum fá í skiptum fyrir fullveldi okkar og sjálfstæði, auðlindir og gæði? Gera vandamál annarra ríkja að okkar?
„Já“ í sumar mun kalla á fulla aðlögun Íslands að regluverki og stjórnsýslu ESB strax. Aðlögun væri lokið þegar þjóðin fengi að greiða atkvæði um samning sem mun ekki innihalda neitt sem ekki var vitað fyrir.
Stöndum með Íslandi.
Stöndum með lýðræðinu og fullveldinu.
Og varðveitum það fyrir komandi kynslóðir.
aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda gagnvart þessum erlendu brotamönnum segir okkur það án nokkurs vafa að þeim er drullusama um íslensku þjóðina. annars væru fjöldabrottvísanir hafnar
@themagic_tophat It can be given and not given.
He goes down so effortlessly when the touch comes.
I would angry not to get a pen there and would be furious if it was against me.
When a sae it first i said dive the the replay shows a small touch, but does it justify a pen? Im not sure.
@LD5931895015311@grassrootsrefJa@refsupportuk Well if an old German cant jogg in your dirrection with out you lot peeing your pants and dishing out redcards you should grow a pair or join the snowflake club😎