Mætti á Bylgjuna í morgun f. hönd @gbrlistinn. Við erum stærsta og öflugasta mótvægið við Sjálfstæðisflokkinn í bænum, höfum skýra framtíðarsýn f. samfélagið okkar og ætlum að láta verkin tala!
Okkar samfélag er fjölbreytt, ábyrgt og barnvænt. ☀️
https://t.co/bAIPLXdMxt
Við þökkum gestum okkar @saevarhb og @gislimarteinn fyrir frábæran fund um samgöngumál út frá lífsgæðum og loftslagsmálum í gærkvöldi. Við förum full innblásturs inn í vorið! ☀️
Við sóttum mikilvægan fund með ÖBÍ og @throskahjalp í dag. @gbrlistinn vill að Garðabær standi vörð um grundvallarréttindi fatlaðs fólks, þ.e. réttinn til sjálfstæðs lífs og þátttöku í samfélaginu, og standi þannig undir þeim skyldum sem hann hefur gagnvart fötluðum íbúum sínum.
Fólkið á Facebook var ansi spennt í dag, 1. apríl, þegar tilkynnt var um að Sveinbjörg okkar væri á leið í fallhlífarstökk með fána (og nammi fyrir börnin) til að vekja athygli á virkni eldra fólks 🤞
Kosningabaráttan framundan. Mörg spennandi verkefni framundan í ört stækkandi samfélagi í Garðabæ🙌🏼 Ég tel mig eiga mikið erindi til áframhaldandi setu í bæjarstjórn. Like ef þið lækið ✌🏼
Framtíðarsýn sem inniheldur meðal annars:
„Uppbygging félagslegra úrræða er ekki lengur nær eingöngu á höndum nágrannasveitarfélaga, heldur tekur Garðabær stoltur þátt í að grípa það fólk sem höllustum fæti stendur, reisa það við og styðja.“
https://t.co/bxr1RgxkPl
Starfsfólk Garðabæjar hefur staðið sig með prýði á COVID-tímum og unnið af heilindum við aukið álag, en árshátíð Gbr hefur þurft að fresta. Tillögu okkar um fjárframlag til stofnana bæjarins til þess að halda árshátíðir hver í sínu lagi var hafnað á bæjarstjórnarfundi á fim.
Við hefðum viljað sjá FG taka þetta í kvöld, en erum ótrúlega stolt af liðinu sem hafa staðið sig eins og hetjur. Til hamingju með silfrið! #gettubetur