Ótrúlegur árangur á innan við sólarhring🖤❤️Ómetanlegur stuðningur, sem sýnir hversu þarft þetta átak er! Ert þú búin að skrá þig á https://t.co/VPfmeV3QCa? 🖊
Á Íslandi deyja að meðaltali 39 manns úr sjálfsvígum ár hvert. Það er á okkar ábyrgð sem samfélag að efla geðheilsuforvarnir og fræðslu og skora á stjórnvöld að setja geðheilsu þjóðarinnar í fyrsta sæti❤️🖤
Taktu þátt í baráttunni og skrifaðu undir! #égerekkitabú
Í dag er #WorldMentalHealthDay og við fögnum því með því að tvíta um geðheilbrigðisþjónustuna á Íslandi, hvað er gott og hvað mætti gera betur?💚✌🏻#égerekkitabú
Lærði að ef ég tek astmalyfin þá getur það ýtt undir kvíða, sem kveikti á ljósaperu hjá mér því skildi ekki hvað væri að valda kvíðanum.
En ef ég tek ekki astmalyfin mín í kulda og mengun, þá fæ ég hósta og í lungun sem veldur covidheilsukvíða.
Lose-lose dæmi
#égerekkitabú
Í tilefni afmæli #égerekkitabú og Alþjóða geðheilbrigðisdagsins sem er núna á laugardaginn, hvet ég ykkur öll til þess að horfa á þættina Bara geðveik á Stöð 2 Maraþon🧠Geðveikir þættir sem fóru framhjá mörgum en fjalla um mikilvæg málefni á mannlegan hátt
https://t.co/q9UGb09AZ7
Held að ég sé í fyrsta skipti að taka mér andlegan veikindadag í vinnunni. Er að leyfa mér að slaka á og vinna í mér í staðinn fyrir að harka af mér og halda áfram.
#égerekkitabú
Fun fact: Gauti var meðal fyrstu frægra einstaklinga sem tvítuðu út #égerekkitabú tvíti og hrinti þar af stað ákveðinni hrinu í skemmtanabransanum þar sem allskonar fólk fór að opna sig, sem sýnir hvað hann er góð fyrirmynd á mörgum sviðum - meira um það seinna.
Rúmlega hálft ár síðan ég reyndi að svipta eigin lífi. Lífið er stundum hræðilega erfitt en mikilvægt að muna líka að það getur líka verið fallegt❤️ það sem er líka mikilvægast að vita að þetta er stöðug barátta og mikilvægt að gefast ekki upp😌 #egerekkitabu
Nýverið átti samfélagsmiðlabyltingarbarnið mitt #égerekkitabú fimm ára afmæli. Ég get ekki orða bundist af stolti og þakklæti fyrir þeim breytingum sem hafa átt sér stað í íslensku samfélagi í kjölfarið og mér þætti vænt um að sjá ykkar tvít um það líka í tilefni afmælisins💚💚💚
Fyrir mér breytti #égerekkitabú öllu - það sýndi samfélaginu hversu margir eiga við geðræn veikindi að stríða rétt eins og líkamleg veikindi. Það var svo fallegt að sjá samstöðuna, ástina og gleðina sem varð til í kjölfarið. Það var líka fallegt að sjá fjölgun fólks í meðferðir.
Það var auðvitað einstaklega fallegt fyrir mig persónulega að fá shout-out #égerekkitabú í lögum frá bæði @arnarfreir og @emmsjegauti en báðir tvítuðu þeir um eigin geðveikindi í kringum byltinguna og það skipti sköpum fyrir okkur að fá boltann til að rúlla og aðra til að deila💚
#égerekkitabú opnaði fyrir mér dyr að baráttunni sem ég hafði ekki hugmynd um að væru mér aðgengilegar - sjónvarpsþátt um geðsjúklinga sem fylgdi mér í heilt ár, skrifaði heila bók, komst í stjórn Geðhjálpar og held áfram að berjast fyrir bættum hag og kjörum geðveikra í landinu
Þann 5.10.2020 átti #égerekkitabú FIMM ára afmæli✊🏻💚🧠🎉Í tilefni afmælisins þætti okkur vænt um að sjá tvít frá ykkur um það hvaða áhrif þessi samfélagsmiðlabylting hefur haft á líf þitt og líðan síðustu fimm árin! 💚💚💚 Takk fyrir stuðninginn!
Í dag er alþjóðlegur fræðslu- og forvarnardagur sjálfsvíga. Mundu að #égerekkitabú og ekki þú heldur, við eigum að geta rætt allan tilfiningaskalann þó það sé stundum erfitt eða sársaukafullt 🙏✨💚
https://t.co/OsPDKaBXu7