Treystum við þjóðinni til að taka ákvörðun um ESB? Ekki spurning!
Treystum við foreldrum til að taka ákvörðun um tilhögun eigin fæðingarorlofs? Bara alls ekki 🫠🫠
Áhugaverður viðburðir hjá BHM á morgun, en tímasetningin gerir kannski ekki ráð fyrir að mæður séu á vinnumarkaði eða að þær þurfi að koma börnum í skóla og leikskóla.
Eiga leikskólar bara að þjóna atvinnulífinu? Eiga þeir kannski að þjóna barninu? Næra þroska þess og bernsku og vera með einsett markmið að gera það sem er barninu fyrir bestu?
https://t.co/FnXy6b5WCO
Finnst skemmtilegt að fólkið sem lætur verðhækkun hjá Veitum trufla sig er sama fólk og vill endilega ganga í ESB og gefa öðrum orkuna okkar með tilheyrandi kostnaði fyrir okkur
Er byrjendalæsi vandamálið?
Eða er vandamálið kannski afskipti foreldra af starfi kennara? Agaleysi heimafyrir? Minni athygli foreldra á námi og árangri og meiri áhersla á líðan? Skortur á aga úrræðum fyrir kennara? Tölum við nóg við börnin okkar? Hafa drengir í elstu bekkjum aðgengi að áhugaverðu lesefni? Eru einhverjar kröfur um árangur í íslensku skólakerfi? Eru of margir nemendur í bekk? Er skóli án aðgreiningar besta rekstrarform skóla? Höfum við mildað kröfurnar of mikið í alþjóðlegum samanburði?
Nei örugglega bara byrjendalæsi um að kenna og önnur tegund lestrarkennslu mun redd'issu
Til hamingju með kvennafrídaginn allar konur! 🇮🇸
Íslenskar konur eru sterkar, valkyrjur myndu sumir segja. Við gerum það sem þarf, það sem við viljum.
Við erum í æðstu stöðum samfélagsins, þökk sé konunum sem fóru í bæinn fyrir 50 árum og þeim sem hafa barist fyrir jöfnuði kynjanna. Því ber að sjálfsögðu að fagna.
Samfélagið ætlaðist einu sinni til þess að við værum heima með börn og gamalmenni, sinntum heimilinu og hlúðum að því fjölskyldunni. Samfélagið í dag ætlast til samábyrgðar para á heimili og börnum og að allir séu að ná langt í sínum starfsframa.
Það er svo mikilvægt að í umræðu um að konur séu t.d. með meiri ábyrgð á heimili og uppeldi að stór hluti kvenna velur slíka ábyrgð, velur að vinna minna og vera meira heimavið, velur að taka lengra fæðingarorlof og velur sér störf sem veita þeim frekar ánægju og launin skipta minna máli.
Vinnumarkaðskúgun fjölskyldna hefur gengið of langt, stoppum aðeins og horfum á nauðsyn þess að "eyða" óleiðréttum launamun.
Við þurfum að hafa raunhæft val án sleggjudóma um kúgun og neyð.
Áfram konur 💪
Virkilega gaman að fá að vera viðmælandi í Grjótkastinu ásamt Kristínu. Við ræddum meðal annars jafnréttisbaráttu, konur á vinnumarkaði, leikskólamál, skólakerfið og velferð barna. Takk fyrir boðið og skemmtilegt spjall @bjorningihr 🤝
https://t.co/jJOOlVInYR
"You either die a hero or live long enough to see yourself become the villain"
Nú finnst mér kvenréttinda og jafnréttis baráttan vera farin að snúast gegn upphaflegum tilgangi sínum.
Baráttan virðist spila á ósannindum, uppgerðum skoðunum kvenna og þá narratív að konur séu fórnarlömb eigin ákvarðana í samfélagi þar sem þær hafa jöfn, ef ekki fleiri tækifæri en ungir karlmenn.
Hér eru sömu laun fyrir sömu störf, en það er ekki nóg, konur þurfa helst að vinna meira en karlar í betur launuðum störfum og eiga meiri lífeyrisréttindi því. Kvenréttindahreyfingunni er mikið í mun að laga óleiðréttan launamun, sem byggir á meðaltali heildatekna karla og kvenna óháð störfum.
Sammála, skal vera á svarta listanum með þér!
Kvár koma kvennabaráttu ekkert við og launamunur kynjanna hefur ekki aukist eins og er haldið fram af skipuleggjendur viðburðarins. Fórnarlambavæðing kvenna fyrir hönd okkar allra heldur áfram 🫡
1. Þetta hlýtur að vera ein sú allra lélegasta afsökun sem maður hefur séð. Hefði allt eins getað sagt að hún væri akkúrat að skila spólu á þessum tíma.
2. Kvenna- og kváraverkfall… afsakið mig en hvað koma kvár kvennafrídeginum og sögu hans við? Hvaða endemis vitleysa er þetta?
P.s. miðað við síðustu tölur sem ég sá yfir leiðréttan launamun kynjanna eftir aldurshópum þá ættu ungar konur að vinna ólaunaða yfirvinnu á þessum degi. Ætli ég muni ekki bara gera það í tilefni dagsins. Setjið mig bara á svarta listann strax.
#spursmál
Ég fagna því að verið sé að halda uppá 50 ára afmæli kvennafrídagsins
En að konur séu að gaslýsa (uppáhalds frasinn 🫠) aðrar konur að kynbundinn launamunur sé að aukast er ekki smart...
Það er líka heil vika tileinkuð hinsegin fólki, mega konur ekki eiga þennan dag fyrir sig?
Búa til barnvænna samfélag með auknum frídögum til foreldra? Neeei 👎
Búa til atvinnulífs vænna samfélag með því að stytta sumarfrí grunnskólabarna? Eeeeinmitt 👍
Lengsti leikskóladagur barna er á Íslandi, en það er vandamál að búa til hvata fyrir fólk til að stytta vistunartíma.
Er vandamálið ekki frekar ósveigjanlegur atvinnumarkaður, há skattbyrði barnafólks og sú staðreynd að íslensk heimili þurfa flest að treysta á tvær fyrirvinnur?
Þurfum við ekki að horfa á breytingar í leikskólamálum sem hvata fyrir stéttarfélagshreyfinguna að gera barnafólki auðveldara t.d. að lækka starfshlutfall, fjölga frídögum miðað við fjölda barna og jafnvel hvetja fyrirtæki til að reka eigin dagforeldramiðstöð fyrir starfsfólk.
Líka hvati fyrir stjórnvöld og sveitarfélög að lækka skatta á barnafólk eftir fjölda barna, breyta fæðingarorlofskerfinu svo það grípi fólk sem eignast börn með stuttu millibili, hækka fæðingarstyrk námsmanna, útvíkka heimgreiðslur svo fólk geti valið að seinka leikskólagöngu og verið heima með börnin og svo mætti lengi telja...
Á endanum er það val fólks að eiga börn, það þurfa vissulega að vera aðstæður í samfélaginu sem hvetja til barneigna, enda nýir skattgreiðendur mikilvægir samfélaginu. En hvatann, fyrir mér, er ekki að finna í leikskóla við 12 mánaða aldur og 8 tíma leikskóladegi fyrir lítið fé, hann er að finna í samfélagi sem setur velferð barna í fyrsta sæti og gerir foreldrum kleift að velja hvernig skuli verja fyrir æviárum barna sinna.
Fyrirsögnin hefði frekar mátt vera:
"20 manns óánægð með Kópavogsmódel sem meirihluti foreldra eru ánægðir með, eykur faglegt starf leikskóla, útrýmir lokunardögum vegna manneklu og tryggir börnum fyrr leikskólavist"
En hvað veit ég? Ég er bara í leikskólanefnd bæjarins
Ef við ætlum virkilega að meta einstaklinga að verðleikum á vinnumarkaði og víðar, þá væri ráð að rýmka reglur um kynjakvóta.
Það er pressa um jafnt hlutfall kynjanna á nánast öllum sviðum atvinnulífsins, sem skilar líklega ekki alltaf hæfustu einstaklingunum í verkefnin.
Atvinnulífið, ríkið og sveitarfélög þurfa að vinna saman. Skattaívilnanir á tekjuskatt fyrir foreldra margra barna, rými til að lækka starfshlutfall þegar fólk er með ung börn, heimgreiðslur, fleira fagfólk í leikskólanna og svo mætti lengi telja. Hægjum taktinn í samfélaginu.
Fólk vill eignast börn en finnst kerfið ekki styðja það.
Ætlast er til að konur (og feður) séu einbeittari af starfsframa sínum en fjölskyldunni. Fólk þarf að geta tekið smá skref til baka og sinnt ungum börnum sínum án þess að vera í fjárhagskröggum og dæmt af samfélaginu