Forsendur fjárlaga eru löngu brostnar og hallinn í ár verður langtum meiri en áætlanir gera ráð fyrir og horfur fyrir næsta ár hafa dökknað verulega. Það er kominn tími til að stjórnin stígi niður úr fílabeinsturni sínum og einbeiti sér að forgangsröðun í ríkisrekstrinum í stað ESB og nýrra skatta enda er það rangt að hærri skattar dragi úr þenslu á meðan ríkið eyðir hverri krónu sem það aflar oftar en einu sinni.
Sýnist að nýtt umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins hafi fallið í þá klassísku gryfju, sem ég þreytist aldrei á að benda á, að horfa á verðlag milli landa í tómarúmi og líta ekki til tekna og kaupmáttar.
Staðreynd málsins er sú að einkaneysla á mann á Íslandi (að raunvirði) er í toppsætum í EES sem er eðli máls samkvæmt bein afleiðing af því að kaupmáttur ráðstöfunartekna er með því hæsta sem gerist hér á landi.
Þetta kemur ekki fram í skjalinu. Ekki er heldur komið inn á gögn um afkomu í dagvöruverslun sem Eurostat heldur ágætlega utan um. Hvers vegna ætli það sé?
Það þykir fréttnæmt að þingmenn fái laun þegar þing er ekki starfandi. En hvað hefur Heimildin birt margar fréttir af því að fyrrverandi ritstjóri blaðsins fékk greidd laun sem þingmaður þrátt fyrir að hafa aldrei setið sem slíkur? https://t.co/r2qidm1Z2n via @heimildin
Þrálátasti og ekki kjánalegasti heldur lang kjánalegasti misskilningur á Íslandi? Mögulega.
Það í hvaða mynt bókhaldslegt uppgjör er umreiknað hefur engin áhrif á í hvaða mynt tekjur og gjöld eru greidd. Það er hins vegar augljóslega til hægðarauka að bókhaldið sé reiknað yfir í þá mynt sem t.d. tekjurnar eru að mestu í.
Ákaflega sorgleg skrif, illa rökstuddar dylgjur og ósannindi um atvinnugrein sem er öfundsverð af árangri sínum og greiðir árlega um 100 ma í skatta til íslenska ríkissins með hóflegri arðsemi - líkt og m.a. ný greining Jakobsson Capital undirstrikar.
https://t.co/PpbQ3SE3YM
Alltaf er það sama sagan með vinstripólitíkina - helsta haldreipið er að ala á tortryggni fólks gagnvart samborgurum sínum. Gengið út frá því að fólk verði svikið og snuðað af fyrirtækjum landsins nema ríkið stígi inn. Ömurlegt viðhorf.
Á sama tíma á klett í Atlantshafi: Tveir agnarsmáir bankar sem tilheyra innri markaðnum fá ekki að sameinast á grundvelli löggjafar, og framkvæmdar á þeirri löggjöf, sem kemur frá ESB.
Mér sýnist þetta viðtal við Halldór Benjamín eða Bad Boy Benjamín eins og Viðreisn virðist líta á hann hafa verið tekið upp áður en stór furðuleg grein Þorsteins Pálssonar um skrif hans og Bogi Nils Bogasonar birtist.
Þessi grein Þorsteins Pálssonar er athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Í fyrsta lagi sýnir hún að Viðreisn er ekki frjálslyndur flokkur heldur popúlískur og maður hefði frekar átt von á svona málflutningi frá fylgismönnum Victors Orban eða Le Pen en frá frjálslyndum stjórnmálamanni. Telur Þorsteinn að það séu bara forstjórar skráðra fyrirtækja sem mega ekki tjá sig eða á það sama við um almenna starfsmenn, starfsfólk verkalýðsfélaga, opinbera starfsmenn, háskólakennara eða öryrkja? Og hvað með alla aktivistana í grasrót Viðreisnar sem ráðherrar flokksins dæla peningum almennings í? Frjálslynt fólk telur að sem flestir eigi að leggja til málanna í opinberri umræðu sem frjálsir borgar en ekki hræddir þegnar, óháð skoðunum þess.
Í öðru lagi staðfestir þessi grein það sem mann grunaði að Viðreisn er ekki að finna meðbyr með tillögu sinni um inngöngu í ESB og því eru þau orðin verulega pirruð. Sama eru uppi á teningnum í skrifum Þorgerðar Katrínar sem eru ýmist hreinn hræðsluáróður eða hún er að reyna að sannfæra fólk um að þessi atkvæðagreiðsla hafi enga þýðingu það sé bara verið að kíkja í pakkann.
Í þriðja lagi verður maður auðvitað að spyrja sig hvað Þorsteinn er að fara þegar hann finnur að því að forstjórar taki þátt í opinberri umræðu vegna þess að þeir starfa í félögum sem eru skráð og lífeyrissjóðir eru á meðal hluthafa í. Fyrirtæki eru sjálfstæður lögaðili og yfir þeim er stjórn, einstökum hluthöfum er óheimilt að taka ákvarðanir fyrir fyrirtækið, það kallast skuggastjórnun. Það er líka vert að hafa í huga að í fæstum tilfellum hefur fólk treyst lífeyrissjóðum fyrir sparnaði sínum af fúsum og frjálsum vilja heldur að grundvelli skyldutryggingar og fæstir hafa val um lífeyrissjóði, þetta er ríkisþvinguð einokun og valdasamþjöppun sem er algjörlega nauðsynjalaus til að ná markmiðum laga um lífeyrissparnað. Frjálslynt fólk vill afnema þessi þvingun í ákveðna lífeyrissjóði, jafnvel þótt það sé skyldutrygging en Þorsteinn Pálsson vill greinilega nota þvingunina í pólitískum tilgangi.
Sú sýn sem grein Þorsteins veitir okkur á pólitíska draumsýn Viðreisnar er ekki fögur, raunar minnir hún mig helst á hryllingsmyndirnar sem áköfustu andstæðingar ESB draga upp af sambandinu ...
https://t.co/5g92y5LKBY
Er til verra og kjánalegra concept en „Orðið á götunni” dálkurinn á DV?
Helvíti þægilegt að geta hraunað yfir mann og annan undir nafnleynd en kallað sig bara „orðið á götunni” 😆
Samhengi hlutanna: Ef Bjarni Ben myndi trompast og hringja brjálaður í skólastjóra hjá barnabarninu sínu og nokkrum mánuðum síðar myndi Áslaug Arna svo reka skólastjórann án rökstuðnings þá væri væntanlega allt brjálað og egg fljúgandi um Austurvöll.
https://t.co/Oh4UJQ0khk
Er nema von að við séum stödd á þessum stað með skólakerfið þegar viðhorf formanns KÍ er þetta (sjá mynd) til þess sem öll þekking byggir á:
Lestri
Lesskilningi
Stærðfræði
Nàttúruvísindum
Nýsköpun
Túlkun
Mat
Greining
Þetta eru hluti þess sem PISA mælir og formaður KÍ kallar ,,bóklega grimmd”
Andverðleikasamfélagið í sinni tærustu mynd.
@andresjons Þetta er eitthvað undarlegur samanburður. Heildarskatttekjur af olíuiðnaði í Noregi vs veiðigjaldið eitt og sér á Íslandi, og svo allt sett í samhengi við íslensk fjárlög. Hvað á þetta að segja fyrirspyrjendum?
Áhugaverð frétt @Vidskiptabladid um úthlutun í Íslandsbankaútboðinu til forstjóra kveikti hugmynd yfir morgunbollanum. Hversu mikið fengu þeir miðað við almenning?
Kauphallarforstjórar fengu 13-falt meira en meðal-Íslendingurinn.
Ágætt að muna í leiðinni að lífeyrissjóðir fengu nærri 40% i útboðinu 2022.
Ríkið hefur nú fengið um 200 milljarða króna fyrir eign sem það borgaði ekki krónu fyrir. Næst á dagskrá hlýtur að vera að selja hlut í samskonar eign: Landsbankanum