Tvíbbar (6ára) spurðu hvað dómstólar væru. Eftir útskýringar og smá spjall báðu þau mig um að koma í dómstólaleik þar sem ég átti að vera bæði lögga og dómari. Ég neitaði því það stangast á við Mannréttindasáttmála Evrópu.
Þau fóru bara í Lego.
@asdiso Takk fyrir þetta. Er búin að vera á leiðinni að kaupa góð krem til að minnka línur og auka raka en með lítilli eða þolanlegri lykt. Keypti í dag og sýnist þetta ætla að tikka í öll box.
Krútttvíbbar (5) voru ofurspennt yfir flugeldum. Ég var skeptísk en við fórum út með stjörnuljós og @stiflugeiri kveikti í lítilli köku. Dóttirin öskraði af hræðslu yfir stjörnuljósinu og bæði fóru að gráta yfir flugeldum. Skildu ekki afhverju fólk gerði þetta. Er frekar sammála.
Dóttirin fékk sér brauð með kæfu, osti og banönum og sonurinn með kavíar og banönum en næst bætti hann við kæfu og eplum. Þeim finnst þetta geggjað gott.
Til öryggis er ég búin að testa bæði bragð- og lyktarskyn með hinum ýmsu matvörum og það virðist vera í lagi. Ég skil ekkert!
@Stefaniasig Man ekki alveg númerið en sýnist okkar týpavera svo gömul að hún sé ekki lengur í sölu. Þetta var sem sagt algjörlega gagnslaus viðvörun og innlegg. En ég ætla að fylgjast með og uppfæra í eitthvað snilldar ryksuguskrímsli.
Desember er mánuður lítils svefns. 1.-12.des var vaknað kl. 6 því tvíbbar eru spennt að opna dagatalið, 12.-24. des var vaknað kl 5:30 því tvíbbar eru spennt að kíkja í skó. Á jóladag var ræs kl 5:47 því tvíbbar voru svo spennt að leika með nýja dótið.
Einhver tímann verð ég kannski týpan sem skreyti jólaborðið rosa flott og hef gaman af því að pakka gjöfum fallega inn en þangað til nýt ég þess að borða geðveikt góðan mat þó dúkurinn sé krumpaður og horfa á ofurglöð krútttvíbbana gleðjast yfir gjöfum þó pakkarnir séu ljótir.
@katrinat Þetta hafði samt greinilega áhrif víðar því ég fékk aldrei kartöflu aftur. Ekki einu sinni þegar ég át allt súkkulaðið úr dagatalinu. Fékk bara nýtt dagatal en ekki þæga systir mín. Ég var víst mjög orkumikið, ósvífið og erfitt barn. Og núna á ég orkumikil, æðisleg og frábær börn
@katrinat Ég fékk einu sinni kartöflu í skóinn. Ávallt þæga eldri systir mín fór að gráta því hún fann svo til með mér en ég tók þetta á kúlinu og sagðist elska kartöflur. Bæði fyrir hana og út af skömminni. Hélt andlitinu alveg fram á kvöld og grét mig svo í svefn.