@aldis_asgeirs Nákvæmlega. Samhengið skiptir öllu. Þegar horft er á heildarmyndina þá er dómarinn að passa upp á tryggja að verið sé að dæma skv. laganna bókstaf svo sakb. hljóti viðeigandi refsingu. Þetta er það dapurlega við fyrirsagnaumræðuna í dag. Fólk - almennt séð - kafar ekki dýpra.
Ég legg til að komið verði á laggirnar sérstöku embætti "Umboðsmanns SARS-CoV-2", svona svipað og umboðsmanns barna, og Jóhannesi Þór Skúlasyni boðið djobbið með de samme!
@svanhildurholm@HabbaKriss Já er hún líka svona...ekki alveg í essinu sínu í eldhúsinu?
Mig dreymir um partner í að gera matreiðsluþátt sem fjallar um allt það mikilvægasta. Eins og: þýðir orðið dass eitthvað í alvöru, hvenær í andskotanum verður laukur glær og hvernig er hægt að kveikja sjaldnar í? Osfrv.
@soleytomasar Einhversstaðar kom fram að fólk með aðrar kynskráningar væri flokkað handahófskennt með körlum og konum og fengi því bólusetningar á sama tíma og þau. Við leysum víst ekki allan vanda á einu bretti.
@ThorsteinnGud Fylgikvillinn væri að sojalattelepjandi veganistar sem stæra sig af því að fara aldrei úr 101 yrðu útilokaðir úr úrtakinu. Sem er ekki endilega ókostur.
Ég er að fara í flug í nótt í fyrsta skipti í langan tíma og líður eins og ég kunni það ekki lengur og muni bara klúðra því að skrá mig inn og labba á öll gler og aldrei finna salerni og óvart smygla skriðdreka