Nú fyrir borgarstjórnarkosningar þá er gott fyrir kjósendur að hafa í huga að það er ekki hægt að taka þá flokka alvarlega sem segjast standa með barnafjölskyldum en ætla á sama tíma að fækka hér akreinum og hrúga niður íbúðum án þess að gera ráð fyrir nóg af bílastæðum.
Þetta fer einfaldlega ekki saman. Það er ekki raunhæft fyrir langflestar barnafjölskyldur að vera án einkabíls og jafnvel stórefling almenningssamgangna breytir því ekki.
Þeir flokkar sem þrengja að einkabílnum, þrengja að barnafjölskyldum.
Svo einfalt er það.
Þessi ágæti frambjóðandi til rektors HÍ vill verða rektor inngildingar. Vonandi mun hún inngilda eitthvað af ólæsu drengjunum sem eiga eftir að naga þröskuldinn hjá HÍ næsta áratuginn. https://t.co/loMAeVhM03
Mest orginal; Haffi Haff. Besta lagið; Reyjavikurdætur. Skemmtilegasta; Dont you Know! Annað er hundleiðinlegt en flestir frábærir flytjendur. Serstaklega Katla! #12stig
Des 2020.
Nýgengi: 46.
Á spítala: 33.
Des 2021.
Nýgengi: 1709.
Á spítala: 19.
Þessi samanburður hlýtur að gefa tilefni til smá bjartsýni þó innlögnum muni fjölga eitthvað. Bólusetningarnar virka frábærlega og ómíkron leggst vægar á fólk. Fjöldi smita vonandi minna fréttnæmur.
Það væri til mikilla bóta ef flugeldar væru einungis leyfðir milli 22-02 (álíka reglur í Osló) á gamlárskvöld. Allt annað er eitthvað svo mikill óþarfi og ekkert eðlilega mikið stress fyrir mikinn fjölda dýra frá 28. des til 7. jan.