@birnadis Nei okkar (tvær saman) eru í Teigunum svo það þarf að fara á bíl en þær eru yndislegar og það fellur nánast aldrei niður daggæsla. Þær eru samt bara með opið til 14:30 sem hentar ekki öllum. Ég veit að það eru 2 mismunandi í blokkinni Háaleitisbraut 45-47 en þekki ekki til þar.
@taramv87 Það er vissulega fyrsta spurningin. Einnig eru spurningar eins og af hverju í ósköpunum er hún að þessu og hvað gerir hún við blautan tannburstann þegar hún er búin?
Stopp á rauðu ljósi sá ég að konan í bílnum fyrir aftan mig var að bursta tennurnar undir stýri. Ég er með svo margar spurningar varðandi þessa hegðun 🤔
Dóttir mín (4) leggur dóm á playlista móðurinnar: Roxy Music er “ógeðslega leiðinlegt”, Stevie Wonder er “alltílæ” en Lou Reed er “geggjaður, fýla þetta!” 🤔
@unnurmargret Nei nefnilega ekki. Ég hef aldrei getað notað svoleiðis. Ég þorði ekki að kaupa þessi fyrr en ég fékk að prófa hjá vini mínum en þau þola hlaup, hopp og svita. Mæli með að prófa samt því þau eru dýr.
@siljabjorkk Sonur minn væri ekki hér ef ég hefði ekki verið á sjúkrahúsi. Það var allt í góðu þar til það var það allt í einu alls ekki og þá var bókstaflega hlaupið með mig inn á skurðstofu. Stundum skipta nokkrar mínútur mjög miklu máli.
Ég er svo hryllilega nýjungagjörn og mikill neytandi að ég keypti vanillu, kirsuberja og ferskju Coke Zero í Hagkaup áðan jafnvel þó það hljómi allt hræðilega og ég drekki eiginlega ekki kók 🤯
Dagur 32 í sumarfríi. Litli brjálæðingurinn reynir stöðugt að klifra upp á hluti og fleygja sér fram af þeim. Sú 4ra ára vakti mig 6:30 og heimtaði að skipta á öllum rúmum, að meðtöldu því sem ég svaf í. Klukkan er 8:45 og ég er örmagna.