Pistill um það af hverju góðar almenningssamgöngur eru frelsismál. Eftir áratugalanga valdatíð íslenskra „frelsisunnenda“ líkist landið að mörgu leyti frekar þriðja flokks Sovétríki en frelsisparadís. Við erum kyrrstöðusamfélag þar sem ríkisvaldinu er beitt í þágu hinna fáu.
@heidarkness @naglalakk Jamm, en kannski gott að hafa í huga að þessi narratíva sem um ræðir er í boði Frosta Logasonar og co á Nútímanum með öllum þeim trúverðugleika sem því fylgir.
@naglalakk „Ömurlega rekið“ er svo rosalega lazy fullyrðing. Lífeyrissjóðir eru að skila meira en 3,5% raunávöxtun á ári að meðaltali áratugi aftur í tímann, sem er langt í frá sjálfgefið í þessu blessaða verðbólgulandi.
Það er eitthvað ljóðrænt við að í fréttunum í kvöld hafi verið talað um hvernig eina lausnin á loftslagsmálunum séu fleiri rafmagnsbílar, og svo strax í að ræða við túrista á flugvellinum sem skildu ekki af hverju það eru engar almenningssamgöngur á landinu
"Mótmælendur gengu of langt"
Sjáiði þennan sturlaða mótmælanda, þennan algjörlega stjórnlausa einstakling sem ógnaði lífi og limum þessa lögreglumanns. Mikilvægt að hafa þessar hetjur sem passa upp á að bílar ráðherrana verði ekki mínútu of seinir úr þessum óþægilegu aðstæðum.
Á sunnanverðu Jótlandi er bær sem er ekki þekktur fyrir margt annað en að þar eru höfuðstöðvar fyrirtækis sem framleiðir litla plastkubba sem er vont að stíga á, og reyndar skemmtigarður sem er tileinkaður þessum sömu kubbum.
@KrissRokk Ég man upp á sentimeter hvar ég stóð þegar ég heyrði fyrstu tónana af Debaser í lok maí 1989. Breytti öllu. Uppáhaldshljómsveitin mín fyrir þann tíma hafði verið Roxette.
Arðsemismat er nýtt tískuorð í umræðunni og menn farnir að láta eins og það sé almennt gert heildstætt arðsemismat fyrir einstakar samgönguframkvæmdir áður en gröfurnar eru ræstar. Það hefur reyndar aldrei tíðkast. 1/7
@BragiGunnlaugss@straetobs Þetta 35 sek. vídeó er eins og bingóspjald hjólreiðamanns á Hverfisgötu:
✅Ruslabíll á hjólastíg
✅Bíll á hjólastíg sem lokar aðkomu að:
✅Ógeðslega óaðgengilegri „hjáleið“ framhjá framkvæmdasvæði (takk fyrir að setja hazard-ljósin á samt🙄)
✅Strætó sem keyrir alltof nálægt