Regarding your discussion with Maajid: he conflated age of consent with marriage age. In France & Italy, marriage age is 18 (consent is 15 & 14). In Pakistan, marriage age is 16 for girls (18 in Sindh), and since extramarital sex is illegal, marriage age IS consent. Taqiyya or tawriya?
Myndir frá 13. nóvember 2015.
Til minningar um þau sem voru drepin og til fjölskyldna þeirra. Einnig til þeirra sem lifðu af þetta hræðilega kvöld og bera enn örin.
Hjartað mitt er þungt þegar ég hugsa til baka. Ég fann svo til með foreldrunum sem misstu börnin og hjartað mitt blæddi með þeim. Ég vissi hvað þau voru að ganga í gegnum.
Just one thing: “Við hvetjum fólk að kjósa með veskinu, sniðganga svínaafurðir…”
We can demand better oversight and inspection rather than boycotting 'svínaafurði'. The real problem in Iceland is poor and inadequate supervision. If people want to eat pork, it should be possible to do so with a clear conscience.
It’s fair that we can vote with our wallets by paying more for products where animal welfare is properly safeguarded.
Það er með ólíkindum hvernig kerfi Sameinuðu þjóðanna virkar stundum í reynd. Íran hefur verið kosið í lykilnefnd SÞ sem kemur til með að móta forgangsröðun í kvenréttindum, mannréttindum og baráttu gegn hryðjuverkum.
Hreinasti skrípaleikur: Að setja eitt harðstjórnarfyllsta klerkaveldi heims í þá stöðu að skilgreina hvað sé „í forgangi“ í réttindum kvenna. Það er erfitt að horfa upp á slíkan skrípaleik án þess að spyrja hvers virði alþjóðlegir mannréttindasáttmálar eru orðnir þegar verkið er falið böðlunum.
Á meðan á þessu stendur heldur aftökusveitin í Teheran áfram að starfa á fullu. Hér eru aðeins örfá af þeim mörgu andlitum sem stjórnvöld þar hafa tekið af lífi undanfarið fyrir það eitt að krefjast frelsis, jafnréttis og grundvallarmannréttinda. Það er þetta fólk sem átti skilið forgang.
SHAME: The U.N. General Assembly just elected the murderous Islamic Republic of Iran to its Committee for Program and Coordination, the main body shaping the world organization’s priorities on Women’s Rights, Human Rights, Disarmament and Counter-Terrorism. 144 voted for Iran. 🧵
Ég þekki ekki Sigurð Hólm og ég er kaþólsk en fannst ég þurfa að tala um það sem hann segir.
Ég rakst nýlega á pistil eftir Sigurð Hólm Gunnarsson. Ég velti því fyrir mér að svara honum beint undir færslunni hans, en ákvað að gera það frekar hér. Ástæðan er einföld: Mér finnst eins og fólk hlusti hreinlega ekki lengur hvort á annað í athugasemdakerfum, heldur fari öll orkan í að verja eigin vígi og afgreiða fólk með stimplum. Mig langar frekar að reyna að gagnrýna sjálft efnið af yfirvegun.
Í pistli sínum tekur Sigurður dæmi um myrkan texta eftir Martein Lúter frá árinu 1543. Hann stillir dæminu upp sem gildru með því að eigna tilvitnanirnar skálduðum múslimum, áður en hann sviptir hulunni af Lúter og spyr í kaldhæðni hvort lúterstrúarmenn á Íslandi þurfi ekki að afneita honum til að teljast eiga heima í vestrænu samfélagi.
Sigurður hefur lengi kynnt sig sem málsvara uppbyggilegra samskipta og sáttamiðlunar. Í eðli sínu gengur sáttamiðlun út á að greina ágreining af dýpt og hjálpa fólki að skilja ólík sjónarmið án þess að grafa dýpri skurði. Þessi framsetning gerir hins vegar nákvæmlega hið gagnstæða; hún notar klassíska „gotcha“-gildru af samfélagsmiðlum til að afgreiða raunverulegar áhyggjur samtímans af samfélagsþróun sem hræsni.
En ef við skoðum sjálfan efnisþráðinn fellur samlíkingin á grundvallaratriði; tímanum og lifandi veruleika.
Marteinn Lúter var uppi fyrir fimm hundruð árum. Á þeim tíma hefur vestræn menning farið í gegnum Upplýsinguna, vísindabyltinguna og mótun nútíma réttarríkis. Lúterskar kirkjur gerðu ekki aðeins upp við myrka arfleifð Lúters í orði, heldur formlega og opinberlega. Lúterska heimssambandið hefur ítrekað afneitað gyðingahatursritum hans og fordæmt þau sem ósættanleg við kristna trú. Enginn lúterskur prestur eða söfnuður í dag predikar brennslu samkunduhúsa eða líkamsrefsingar. Lútersk samfélög urðu þvert á móti vagga nútíma mannréttinda og jafnréttis í Evrópu.
Að búa til skáldaða prédikara til að sýna fram á að áhyggjur samtímans séu ástæðulausar hittir líka illa í mark vegna þess að raunveruleikinn þarf engan skáldskap. Við þurfum ekki að leita aftur til 16. aldar til að finna slíkan boðskap. Á allra síðustu árum hafa dómstólar og stjórnvöld í okkar nánustu nágrannalöndum þurft að taka á raunverulegum predikunum áhrifamikilla imama í evrópskum stórborgum:
Í Kaupmannahöfn var imaminn Mundhir Abdallah dæmdur fyrir að vitna í trúartexta (hadíður) í föstudagsbæn: „Dómsdagur mun ekki koma fyrr en múslimar berjast við gyðingana og drepa þá, þannig að gyðingurinn felur sig á bak við steina og tré, og steinninn og tréð segja: Ó múslimi, ó þjónn Allah, hér er gyðingur á bak við mig, komdu og dreptu hann.“
Í Malmö var imam sakfelldur fyrir hatursorðræðu eftir að hafa predikað opinberlega: „Gyðingar eru afsprengi apa og svína.“
Í Frakklandi vísuðu stjórnvöld imamnum Mahjoub Mahjoubi úr landi eftir að hann lýsti vestrænu lýðræði og fána lýðveldisins sem: „Satanískum táknum sem einskis virði eru í augum Allah.“
Þetta eru ekki rykfallnir textar sem búið er að afneita og henda á öskuhaug sögunnar, heldur lifandi boðskapur sem á sér enn virka talsmenn og hljómgrunn í samtímanum. Samskonar afdráttarlaust, stofnanabundið uppgjör við bókstafstrúarlega túlkun á ofbeldislegum textum er enn veruleg áskorun innan margra íslamskra stofnana.
Þetta endurspeglast líka í viðhorfskönnunum. Kannanir Pew Research Center hafa sýnt að í mörgum Evrópulöndum styður verulegur hluti múslima, oft á bilinu 30–45%, að sjaría skuli gilda að minnsta kosti að hluta, að fráhvarf frá trúnni eigi að varða viðurlög og að samkynhneigð sé siðferðilega óviðunandi. Þetta eru ekki eingöngu einangruð jaðartilfelli.
Umræðan snýst því ekki um að dæma einstaklinga fyrir trú þeirra né um hvað gerðist á 16. öld. Hún snýst um hvort við séum tilbúin að standa vörð um leikreglur lýðræðislegs réttarríkis í dag; að lög landsins standi æðri trúarbrögðum, að réttindi kvenna og minnihlutahópa séu virt og að öfgaöflum sé ekki veitt skjól í nafni misskilins umburðarlyndis.
Að reyna að afgreiða þessar raunverulegu áskoranir með 500 ára gamalli sagnfræði er hvorki uppbyggileg samfélagsrýni né góð sáttamiðlun.
Inngilding getur aldrei verið einstefna: Hvar liggja mörkin milli stuðnings og sjálfsábyrgðar?
Grace Achieng vekur athygli á mikilvægum þáttum í skoðanapistli á Vísi, eins og aðgengi að íslenskunámi og nýtingu menntunar á vinnumarkaði. Það er sjálfsagt að samfélagið greiði götu þeirra sem hingað koma og vilja taka fullan þátt. En ef við ætlum að ræða inngildingu af fullri hreinskilni og efnislegri nákvæmni vekja röksemdir hennar spurningar sem við þurfum að bera fram:
1. Aukið mat á umsækjendum og landamæri.
Grace gerir athugasemd við að frumvarp ráðherra heimili aukið mat á umsækjendum. En hvert er raunhæfa mótsvarið? Sérhvert fullvalda ríki verður að geta metið forsendur þeirra sem sækja um dvalarleyfi eða vernd, bæði með tilliti til raunverulegrar þarfar á vernd og getu innviða samfélagsins til að taka á móti fólki. Ef við gagnrýnum sjálft matið, er þá verið að segja að hver sem er eigi að geta komið án nokkurra skilyrða eða takmarkana?
2. Aðlögun á móti inngildingu
Grace varar við því að fólk þurfi að „afmá eigin menningu, tungumál og sögu“. Þar geta allir verið sammála um að enginn eigi að þurfa að farga uppruna sínum eða persónulegum arfi. En mörkin liggja við leikreglur réttarríkisins. Að krefjast þess að fólk virði jafnrétti kynjanna, frelsi einstaklingsins og að lög landsins standi æðri öllum trúarbrögðum er ekki að krefjast þess að fólk afmái sjálft sig. Það er einfaldlega forsenda þess að frjálst samfélag geti starfað án þess að hér myndist lokuð samfélög sem hafna grundvallarlögum landsins og mannréttindum.
3. „Við veljum ekki hvaða fjölbreytileika við samþykkjum“
Þessi fullyrðing stenst ekki ef hún er skoðuð til hlítar. Frjálst og lýðræðislegt samfélag verður alltaf að velja hvað það samþykkir. Við fögnum fjölbreytileika í menningu, listum og persónulegum skoðunum, en við samþykkjum aldrei hugmyndafræði sem grefur undan réttindum kvenna, tjáningarfrelsi eða mannréttindum. Reynslan frá nágrannalöndum okkar sýnir einmitt að sum menningarleg og trúarleg viðhorf eiga mun erfiðara með að samræmast vestrænum lýðræðisreglum en önnur. Að loka augunum fyrir því gerir engum greiða.
4. Einstaklingsábyrgðin á móti ríkisábyrgð.
Stærsti gallinn við nálgun af þessu tagi er að hún gerir inngildingu að hreinni einstefnu. Ríkið á að borga, ríkið á að opna, ríkið á að aðlaga sig. En hvað með innflytjandann sjálfan? Hvað telur Grace sanngjarnt að fólk leggi sjálft á sig til að falla inn í samfélagið sem það kýs að flytja til? Einstaklingsframtakið, virðingin fyrir leikreglum nýja landsins og viljinn til að aðlagast gildismati þess getur aldrei verið aukaatriði.
Inngilding á að vera mannúðleg og sanngjörn, en hún verður að vera gagnkvæm. Réttindum fylgja skyldur, og raunverulegt réttlæti krefst þess að rætt sé um báðar hliðar peningsins. Telst það fordómar að spyrja þessara spurninga?
https://t.co/LLAJWUMcf3
@raunfirdingur Ætli Egill hafi spurt hvar kjötið sé framleitt? Er það innflutt, frosið, framleitt á Íslandi, á staðnum? Veit hann hvað er í kebabinum sínu? 🤔
Un journaliste derrière les barreaux, c’est la liberté d’informer qu’on veut faire plier. Le régime algérien doit cesser de confondre autorité et intimidation. Sept ans de prison ne feront jamais taire le droit de savoir. Gleizes doit être libre. Maintenant.