Mannlíf, byggð og bæjarrými - Leiðbeiningar um sjálfbært skipulag og vistvænar samgöngur í þéttbýli kom út í lok síðasta árs, í fyrsta sinn á íslensku.🧵
Þær nýtast öllum þeim sem láta sig skipulagsmál varða, til fræðslu og umræðu, fyrir fagstéttir, embættisfólk, kjörna fulltrúa og almenning.
Skipulagsstofnun og SSH gefur ritið út í samstarfi við Teiknistofuna Stiku en einnig komu EFLA og Landmótun að gerð leiðbeininganna.
@IcePlanning@AgustssonJon
https://t.co/wowHpjTkGo
Gangandi þurfa oft að leggja lykkju á leið sína því umhverfi okkar er oft hannað út frá forsendum bílaumferðar.
Til að styðja við vistvæna ferðamáta þarf að stytta vegalengdir, bæta yfirsýn og auka þar með öryggi gangandi og hjólandi.
@bingibjarts Er Isavia ekki bara að kalla á hjálp -þeir geta ekki sagt að þau vilji flytja flugvöllinn svo þau leggja fram fáranlega kröfu sem þau vita að falli illa í kramið?
Magnea Þ. Guðmundsdóttir arkitekt gefur borgarrýminu á Hlíðarenda þrjár ⭐⭐⭐ fyrir borgarbrag, skjólsæla garða og hverfi sem á bjarta framtíð. „Með metnaðarfyllri bílastæðastefnu, yfirvegaðri arkitektúr og grænni göturými hefðu þær orðið fleiri.“ https://t.co/kxGAKmnO7w