Það er bersýnilegt að það er eitthvað rotið inni í bæði Viðreisn og meirihlutanum öllum…
Jón er annar þingmaðurinn sem segir sig úr ríkisstjórnarflokki á kjörtímabilinu og verður áhugavert að sjá hvernig valkyrjurnar ætla að ljúga sig úr þessu…
https://t.co/E5IOvSw7zY
@dadikr Spurning er samt hversu sjálfbær sá hagnaðarvöxtur er og hvaða væntingar eru innbyggðar í verðlagningu…
Tala nú ekki um þegar fyrirtæki eru að fjármagna kaup viðskiptavina sinna á eigin vörum…
Halla heldur af stað niður veg sem ég held að verði endalok hennar sem formaður VR…
Hennar fólk mun fara töluvert verr út úr þessu en hún gerir sér grein fyrir…
https://t.co/H6uZEPSKiQ
Þetta er sláandi mynd og í raun ótrúlegt hvað bankakerfið hér á landi er sterkt á miðað við þá gullhúðun og neikvæðni sem ríkir í garð bankageirans hér á landi…
Sértækir skattar á íslenska banka eru þegar fimmfaldir á við meðaltal Vestur-Evrópu. Eftir hækkunina verða þeir sjöfaldir. Lífeyrissjóðir veita líka húsnæðislán en bera ekki þessar álögur. Kostnaðurinn mun leiða til lakari lánskjara heimila og fyrirtækja.
Það á bara að ganga endanlega frá hagkerfinu…
Fyrirtækin höndla ekki meira, ríkisstjórnin er vanhæf, verðbólga þrálát og atvinnuleysi að fara stóraukast…
Kristrúnar Frostaveturinn mikli er hafinn…
https://t.co/v9ShSdNb9d
Evrópureglurnar sem verið er að innleiða gera hins vegar ekki kröfu um neitt tölulegt hámark, heldur er því um að ræða sérstaka íslenska takmörkun – oft nefnt gullhúðun eða blýhúðun – sem stjórnvöld kjósa að viðhalda.
https://t.co/wJFqdMWTez
Fréttir um samruna lífeyrissjóða er áhyggjumál fyrir markaðinn og launþega landsins…
Þetta dregur úr virkni markaða og er strax farið að hafa neikvæð áhrif og þess vegna þarf að grípa til aðgerða sem stuðla að aukinni þátttöku almennings á markaði…
Sleggjan þarf að vakna!
Hvaða leikrit er í gangi hérna…
Hugsa að tíminn muni leiða það í ljós að þetta var með því asnalegra sem að einhver ráðherra hefur gert í sögu Íslands…
Asnalegt að hálfu já sinna að halda því fram að fjármagn eða blekking hafi gert það að verkum að þjóðin sagði NEI…
Valkyrjurnar vakna með kaldan svita þennan morguninn því þær vita að nú þurfa þær raunverulega að gera eitthvað og staðan er ekki góð…
Evrópusambandið er í frjálsu falli
Evrópa er á hraðri niðurleið og ESB ber að miklu leyti ábyrgð á því. Það sem einu sinni var eitt sterkasta efnahagssvæði heims er nú að hverfa, bæði efnahagslega og menningarlega.
Árið 1980 stóðu ríki þess sem nú er ESB fyrir um 27% af heimsframleiðslu. Í lok árs 2025 var hluturinn fallinn niður í 15,5%. ESB hefur byggt upp risavaxin velferðarkerfi, háa skatta og óhemju regluverk, sem gera fyrirtækjum erfitt fyrir. Allt hefur þetta kæft vöxt og nú er svo komið að fjárhagur margra ESB landa er orðinn ósjálfbær, þrátt fyrir alla ofurskattana.
Orkustefnan hefur verið sérstaklega skaðleg, sem hefur leitt til þess að fyrirtæki flytja framleiðslu sína annað, fjárfestingar snúa sér frá Evrópu og tæknirisarnir eru næstum allir bandarískir eða asískir. Hröð umbreytingu yfir í „endurnýjanlega“ orku hefur t.d. leitt til þess að orkuverð er þrisvar til fimm sinnum hærra en í Bandaríkjunum, sem leiðir til þess að evrópsk fyrirtæki eru ekki samkeppnishæf.
En af hverju viljum við Íslendingar taka þátt í þessum hrunadansi? Margir telja að með upptöku evru sjái þeir fram á betri tíma með lægri vöxtum. Ofur lágir vextir í evrulöndum eru þó aðeins svikalogn og í raun skýr sjúkdómseinkenni. Sjúkdómurinn er langvarandi efnahagsleg hnignun og samdráttur. Það sem er fyrirséð að muni gerast á næstu árum, samkvæmt skýrslu frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum (Europe’s Fiscal Squeeze: Tackling Rising Spending Pressures), er að skuldir margra evru landa verða óviðráðanlegar, sem svo leiðir til þess að vextir hækka verulega auk þess sem draga mun úr fjárfestingu og atvinnuleysi verður mikið. Staðan er einnig sú að það verður ekki hægt að reka lífeyris-, velferðar- og heilbrigðiskerfi í núverandi mynd.
Málið er einfaldlega það að evran hentar mjög illa fyrir Ísland og mun leiða til efnahagslegra vandamála mjög fljótt, vonir um betri lífkjör eru því óréttmætar. Þetta má m.a. lesa úr skýrslu Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópusambandsins, undir nafninu „The future of European competitiveness“. Niðurstöður skýrslunnar eru nokkuð sláandi í ljósi þess að hún kemur frá Evrópusambandinu sjálfu.
Niðurstöðurnar varðandi evruna eru sérstaklega áhugaverðar en í skýrslunni kemur fram að evran hafi skapað áskoranir vegna skorts á sveigjanleika í peningamálum. Vandinn er m.a. sökum þess að aðildarríki missa sjálfstæðan gjaldmiðil og þar með getu til að stjórna peningamálastefnu til að bregðast við svæðisbundnum efnahagskreppum. Norður-Evrópa, einkum Þýskaland, hefur notið góðs af evrunni vegna sterkra útflutningshagkerfa en ýtt undir viðskiptahalla hjá öðrum aðildarríkjum, sem hafa orðið háðari erlendum lánveitingum og innflutningi.
Sem sagt að þó að evran hafi stuðlað að stöðugleika og auknum viðskiptum innan ESB, hefur hún einnig takmarkað aðildarríkin í aðlögun að staðbundnum efnahagskreppum og ýtt undir ójafnvægi milli ríkja. Þau ríki sem hafa einna helst notið góðs af evrunni eru stór ríki með mikinn iðnað en það á ekki við um Ísland. Ísland er lítið hagkerfi sem er bæði sveiflukennt vegna smæðar og vegna náttúrulegra aðstæðna. Af skýrslunni má glögglega sjá að evran myndi henta Íslandi afar illa til lengri tíma litið þar sem ekki væri unnt að bregðast við sveiflum og áföllum í efnahagsmálum með beitingu peningastefnunnar.
@Manipeturs Kannski harkalegt að segja að hún de facto eigi að segja af sér en ef Nei er niðurstaðan þá hefur hún fengið höfnun frá þjóðinni á sama tíma og henni er að mistakast sitt stærsta verkefni sem er lækkun verðbólgu og vaxta (eins og hún lofaði að gera)…
Það er eins og kosningaáróður já-sinna gangi út á að nýta sér hvað þjóðinni (og greinilega þeim sjálfum) skortir mikið fjármálalæsi…
Og að hugsa til þess að það sé til fólk sem að heyrir þetta og hugsar með sér að þetta sé eitthvað sem þau tengja við…🤡
Vextirnir bíta ekkert á hið opinbera. Hærri kostnaður leiðir bara til meiri halla sem er fjarmagnaður með útgáfu skuldabréfa sem er ígildi peningaprentunar. Það nást aldrei tök á opinberum rekstri fyrr en það næst stjórn á útgjöldunum.