@HalliBolli Þetta hefur alltaf verið svona, höfuðborgin fær skattana og dómgæsluna, við á landsbyggðinni fáum samt að vinna og búa til verðmæti.
Fyrir það getum við verið þakklát.
Tveir milljarðar. Nú er ég ekki að vera dramatískur – en segi samt: Þetta er reginhneyksli. Og maður óttast að þetta sé toppurinn á ísjakanum. (Ísjakanum sem veldur því t.d. að hvergi er verr komið fyrir dagvistunarmálum en í Reykjavík.)
Breytingar í borginni næsta vor? Pæling!
Ef þú ert t.d. 35 ára og með 1,25 mkr mánaðarlaun, ert þú ekki hluti "almennings" í augum Viðreisnar ... eflaust einhverjir sem hefðu viljað hafa fengið það memo f seinustu kosningar ...
https://t.co/LaNNFpwir8
Af hverju leggjum við ekki bara sjávarútveg niður og brennum skipin? Það virðist nefnilega vera bannað að ganga of vel með óríkisstyrktan sjávarútveg.
Þórður Snær og frændur hans á Kaffi Vest myndu allavega vera hamingjusamir
@Dagurb Sæll Dagur
Er fólk ekki frekar að nýta sér aðrar leiðir vegna gífurlegs kostnaðar sem fylgir því að fara með flokkað rusl upp á Sorpu?
Að kasta því t.d. í hafið kostar ekkert og þú þarft ekki að flokka.
En það getur kostað mörg hundruð þúsund að fara með það upp á Sorpu.
Follow the money ...
Stefán Eiríksson neitar að tjá sig við Morgunblaðið um hlut RÚV í byrlunarmálinu og bera alvarlegar sakir af stofnuninni sem rekinn er á kostnað og í umboði almennings en mætir galvaskur á Samstöðina til að verja stöðu RÚV á auglýsingamarkaði ...
Það er fróðlegt að sjá svart á hvítu eftir allt saman hvað „ofbeldið“ og öll gífuryrðin og drullið á embættismenn, dómara og kjörna fulltrúa snýst um í raun og veru.
Í stuttu máli er þetta svona: Fasteign er keypt árið 2007 á 55 milljónir króna með 30 milljón króna láni. Ekki er greitt af láninu frá 2009 til 2017, eða í 8-9 ár en samt er búið í húsinu allan tímann.
Eftir að húsið fer á nauðungarsölu og verður eign bankans, fær ráðherrann og maður hennar samt að kaupa eignina til baka í árslok 2019 á **55 milljónir króna**. Markaðsverð á þessum tíma hefur verið a.m.k. 85-90 milljónir króna og virði svona eigna í dag er að lágmarki 130-140 milljónir.
Væri fróðlegt að vita hvort fólki muni standa þetta almennt til boða, þ.e. að búa í húsinu sínu í tæpan áratug án þess að borga af lánum, kæra bankann bak og fyrir vegna nauðungarsölu en fá samt að kaupa eignina til baka á 12 ára gömlu verði.
Til að toppa þetta er svo farið í skaðabótamál við ríkið upp á 11 milljónir (heildarkrafan líklega 16-17 milljónir með vöxtum) og þegar málið tapast lætur ráðherra í ríkisstjórn Íslands það út úr sér að það sé ekki hægt að gera ráð fyrir neinu réttlæti fyrir íslenskum dómstólum!