Áætlaðar tekjur af bifreiðum & eldsneyti nema um 89 milljörðum skv fjárlagafrumvarpi.
Áætlaðar vegaframkvæmdir og viðhald 32.4 milljarðar og er það skorið niður um 2.4 milljarða.
EN VIÐ ÞURFUM ENDILEGA AÐ HÆKKA KÍLÓMETRAGJALDIÐ.
„Við hvað erum við hrædd? Sushi eða enchilada? Kebab?“ spurði Hallgrímur Helgason í settinu hjá Gísla Marteini árið 2024.
Ég held að almenningur óttist kannski frekar ISIS-liða á Akureyri, Hamas-liða á Höfðatorgi og stunguárásir í strætisvögnum.
Aldrei, og þá meina ég aldrei, skulum við láta eins og þetta ástand sé eðlilegt á Íslandi.
Ég skrifaði pistil sem birtist á Vísi í morgun sem snýr að veðmálaumhverfinu á Íslandi. Erlend veðmálafyrirtæki eru komin til að vera og við verðum að hætta að tala þannig eins og þau séu eina vandamálið - úrelt lög og óskilvirk stjórnkerfi eru það.
https://t.co/0bN1ZsvVEv
Ætla að fá að nota þessa gaslýsingu næst þegar konan spyr mig af hverju ég eyddi 1.500 evrum á Epicbet í mánuðinum:
„Síðustu daga hef ég fylgst með umræðu um hvort það sé rétt að ég eyði 1.500 evrum á Epicbet. Líkt og víða annars staðar eru að myndast dýpri átakalínur í sambandi okkar sem hverfast um hvar sameiginlegum fjárhagslegum hagsmunum okkar er best borgið í síbreytilegum heimi. Mér finnst ég vera að upplifa hér að miklu leyti harðkjarna innflutta orðræðu um spilafíkn.
Þetta bitnar ekki á því sem við erum að gera hér heima. Við erum að setja:
400.000 kr. í húsnæðislánið
300.000 kr. í Nettó
100.000 í skólagjöld
50.000 í bensín
30.000 í fótboltaæfingar
18.000 í Sýn, Disney+ og Netflix
Auk þess styrkti ég Happdrætti DAS í allt sumar“
Það hefur verið óhugnanlegt að fylgjast með viðbrögðunum við morði Charlie Kirk.
Sumir fjölmiðlar, innan lands og utan, hafa frá fyrstu fréttum lagt áherslu á að Kirk hafi verið umdeildur eða jafnvel „öfga-hægrimaður��. Endurfluttar hafa verið, gagnrýnilaust, ýmsar rangfærslur um manninn sem og óhróður andstæðinga um hann. Fullyrðingarnar sem nú virðist ljóst að hafi verið hvati morðingjans.
Góð leið til að átta sig á fáránleika umfjöllunarinnar er að segja söguna eins og hún var nema með einni breytingu.
Ímyndum okkur að Charlie Kirk hefði verið vinstrimaður. Víxlum hægri og vinstri en höldum öðru óbreyttu:
Ímyndum okkur að hinn ungi vinstrimaður hefði frá 18 ára aldri beitt sér gegn ofbeldi og fyrir rökræðu í samfélaginu. Það hefði hann gert m.a. með því að ferðast á milli háskóla og bjóða fólki að gagnrýna sig.
Hann hefði verið óhræddur við að mæta í stóra hópa ákafra hægrimanna og látið öskra á sig en ávallt minnt á gildi þekkingar og rökræðu.
Ímyndum okkur svo að fyrir vikið hefði þessi málsvari tjáningarfrelsis, sem var tilbúinn til að rökræða við fólk bæði lengst til vinstri og hægri, orðið að hatursfígúru öfga hægrimanna sem hefðu skáldað allt mögulegt um afstöðu mannsins fremur en að svara athugasemdum hans með rökum.
Ímyndum okkur loks að hinn ungi vinstrimaður hefði verið í miðjum rökræðum í háskóla þegar hann hefði verið skotinn til bana fyrir framan fjölskyldu sína og fjölda ungs fólks sem var mætt til að hlýða á rökræður.
Aðrir hefðu séð myndbandsupptökur af morðinu á þekktasta talsmanni vinstristefnu, rökræðu og friðar í Bandaríkjunum. Séð hvernig blóðið lak yfir hvítan stuttermabol merktan „Frelsi” (eða „Ást og friður”) þar til manninum blæddi út.
Hver hefðu viðbrögðin orðið?
Hvernig hefðu fjölmiðlar fjallað um málið? Hefðu þeir byrjað á að útskýra að þetta hafi nú verið mjög umdeildur maður og öfga-vinstrimaður. Hann hafi sagt margt sem fólk taldi móðgandi.
Hefðu þeir á fyrsta degi skellt fram gömlum fullyrðingum hatursmanna hans og birt þær sem sannleika?
Hefði íslenskur blaðamaður skrifað langa níðgrein um manninn hálfum sólarhring eftir að hann var myrtur?
Hefðu álitsgjafar fyrst og fremst lýst áhyggjum af því að vinstrisinnuð stjórnvöld gætu nýtt „atburðinn” til að herða tökin?
Hefðu stuðningsmenn hins myrta látið sér nægja að halda bænastundir eða hefðu hafist óeirðir í borgum um öll Bandaríkin?
Og hvað hefði gerst ef ótrúlegur fjöldi fólks hefði ýmist afsakað morðið á unga vinstrimanninum eða fagnað því?
Eða ef samfélagsmiðlar hefðu fyllst af gömlum rangfærslum um manninn, sömu rangfærslum og stuðluðu að morðinu?
Hver hefðu viðbrögðin orðið?
Efast einhver um að þau hefðu verið afar ólík því sem við höfum horft upp á eftir morðið á Charlie Kirk?
Þessi er líklega meira að pæla í Liverpool podcastinu sínu en að nemendurnir hans kunni lestur, lesskilning og stærðfræði.
Er virkilega ekki komið gott? ™️
https://t.co/0mAWIVl7h1