Langar þig að eignast Horfnar? Ég er kominn í jólaskap og ætla að gefa tvö eintök, árituð eftir ósk vinningshafana. Retweet, og þú ert kominn í pottinn. Dregið úr nöfnum þeirra sem Retweeta eftir næstu helgi ❤🌲
Ég ætla bara aðeins að loka augunum og ímynda mér að í janúar verði Donald Trump ekki lengur forseti Bandaríkjanna og í mars kemur bóluefni gegn Covid handa öllum og þá er það búið og í maí vinnur Daði Eurovision og svo kemur sumar og þá er hægt að grilla.
Sjúklega vinsælir íslenskir kvenkyns tónlistarmenn sem hafa örugglega nóg að gera: GDRN, Glowie, Bríet, Sigríður Thorlacius, Cell7, (og Björk augljóslega), skrilljón aðrar... það er ekki kynjamisrétti að fíla ekki tónlist Reykjavíkurdætra. Það heitir tónlistarsmekkur.
Þjóðhátíð ❤️
1.Að hella í sig með vinum sínum
2.Að labba inn í dalinn með vinum sínum
3.Að setjast í brekkuna með vinum sínum
4. Að njóta hæfileika íslenskra tónlistarmanna með vinum sínum
5. Að fara svo að pissa
6. Að finna ekki vini sína
7. Að vera kominn í nýjan vinahóp
Vorkunn mín er hjá öllu starfsfólki Wow Air sem var að missa vinnuna, ekki hjá flugfarþegum sem keyptu flugmiða og komast ekki á áfangastað. Hef bæði lent í því að missa vinnuna og að fluginu mínu hafi verið aflýst. Annað reynir virkilega á mann andlega, hitt er bara vel pirrandi
Ég kveiki ALDREI ljós á stigagöngum í fjölbýlishúsum
HVAÐ EF ÉG DINGLA ÓVART OG VEK ALLA FJÖLSKYLDUNA OG ALLIR VERÐA REIÐIR OG MAMMA NÆR EKKI AÐ SOFNA AFTUR OG MÆTIR SEINT Í VINNUNA DAGINN EFTIR OG VERÐUR REKIN OG ENGINN PENINGUR KEMUR TIL FJÖLSKYLDUNNAR ÞVÍ PABBI ER LISTAMAÐUR
Af hverju flytur ungt fólk úr landi? Jú því Mangó Tangó kostar 2000 krónur , 17 fermetra kjallaraíbúð í Árneshreppi kostar 40 milljónir og ég þarf að vera í ullarsokkum í maí
Ef við komumst ekki áfram sendum við Kára Stefánsson eftir ár og hann heldur 3 mínútna ræðu um hvað þetta sé heimskulegur hégómi og hversu illa Evrópa hafi farið með okkur í keppninni. Slær í gegn. Fyrsti sigurvegari Júróvísjón sem söng ekkert fkn goðsögnin sem hann er. #12stig