@larrybird1312 Febrúar/ mars sól ! Mjólkursúkkulaði og allur reyktur matur! Instant krass ef ég borða reyktan mat, versti dagur ársins þegar verið er að sjóða jólahangikjötið en ég get fengið ljótan hausverk af lyktinni.
@thordisg Gáfum tengdamömmu ryksuguróbot, hún skírði hann Róbertó.
Ég: Heh, er það ekki dálítið rasískt? Heitir sláttuvélin ykkar kannski Carlos?
Tengdamamma: Hvað áttu við? Hann er Róbot, Rób-ertó....
Ég: ..!! 🙈🙃😰
Vissu þið að lagið Summertime Magic er ekki sungið af Unnsteini Manúel og er ekki smíði Retro Stefsons!??
Heldur er þetta Childish Gambino! Ég hélt nefnilega að þetta væri Unnsteinn og viðlagið væri:
"Dúllan mín, dúllan mín, dúll
dúllan mín, dúllan mín, dúll"
Fannst það passa.