Ég er að sjá verða til nýja og gríðarlega verðmæta tegund af starfsmanni. Köllum hann Markaðsverkfræðing.
Hann er AI-native og getur sjálfur:
- Smíðað vefi og verkfæri með AI-forritun
- Tengt kerfi, gögn og API og sjálfvirknivætt verkferla
- Hannað auglýsingar, myndefni og markaðsefni
- Byggt, keyrt og fínstillt herferðir með AI-agentum
- Sett upp tracking og events á öllu söluferlinu
- Keyrt A/B prófanir og nýtt gögn til að auka sölu
Hann þarf ekki að bíða eftir hönnuði, forritara eða gagnagreinanda. Hann fer frá hugmynd í framkvæmd á nokkrum klukkustundum.
Það eru kannski 10 svona á Íslandi í dag.
Ég get ekki lengur séð íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki án þess að hugsa hvar það verður statt eftir 1–2 ár. Hvað eiga þau umfram kóðann, nú þegar kostnaðurinn við að skrifa hann stefnir í núll?
Viðskiptamódelið ræður úrslitum um hversu berskjölduð þau verða. Spá:
Ágætlega varin (sum eflast jafnvel)
- Leyfisskyld starfsemi með aðgangshindrunum
- Vélbúnaður og starfsemi í raunheimum
- Sérhæfð gögn sem verða verðmætari með notkun
- Kerfi sem eru „source of truth“
- Markaðstorg og fyrirtæki með sterk network effects
- Sterk vörumerki og öflug sala
Undir þrýstingi
- Hugbúnaður sem keppir á fjölda eiginleika
- Tól sem einfalda endurtekin verkefni
- Fyrirtæki sem selja aðgang að almennum upplýsingum
- AI wrappers án eigin gagna eða forskots
- Þjónusta sem rukkar í tímavinnu
Í mestri hættu
- Einföld öpp sem hægt er að smíða með AI á einni helgi
- Fyrirtæki sem rukka hátt verð fyrir það sem AI leysir á sekúndum
- Milliliðir sem miðla upplýsingum
- Vörur sem treysta á að erfitt sé að smíða þær
Ashton Kutcher og sjóðurinn hans settu fyrst 35 milljónir dala í Anthropic árið 2023 og svo 400 milljónir í viðbót. Hluturinn er metinn á um 7 milljarða í IPO á fimmtudag, 16x það sem þeir lögðu inn.
nb. sjóðurinn hefur líka 43x fjárfestinguna sína í OpenAI.
You work your ass off solving really hard problems day after day for decades, and this is what you get: anyone could have done it.
As an investor, I can tell you the limiting factor isn't investment. It's founder ability.
Pældu í því að vera svo örlátur á peninga annarra að þér finnst bara í lagi að íslenskir skattgreiðendur greiði háskólanám fyrir ALLA heimsbyggðina.
Hver vaknar á morgnana og velur sér svona málstað til að berjast fyrir?
Jensen er hættur hjá Nvidia. Flókin ákvörðun hjá stjórninni að taka.
Hann byggði félagið upp í $4 tn risa og skapaði gríðarleg verðmæti fyrir hluthafa og starfsfólk.
Þrjár spurningar: Hvaða áhrif hefur þetta á AI þróun, bandaríska hagkerfið, og hvað gerir hann næst?
1998 óttaðist Microsoft að vafrinn gæti gert Windows óþarft. Fyrirtækið beitti því yfirburðum sínum til að kæfa Netscape og var kært fyrir vikið.
Í dag kynnir Anthropic excel og word tól í Claude. Nú gæti gervigreindin gert Office óþarft.
Sagan endurtekur sig.
Starting to roll out today: Claude Whiteboards, Claude Sheets and Claude Data.
Think a plan through on a board, build a tracker in a sheet, and tell a story with your data.
Ég á ótrúlega erfitt með að skilja að í sumum ríkjum Bandaríkjanna sé hægt að mæta á kjörstað og kjósa án þess að sýna skilríki.
En að fólk berjist beinlínis fyrir því að hafa þetta svona? Það er mér gjörsamlega óskiljanlegt. Hvað er ég ekki að fatta?
Agentarnir á bak við Leyst prófa tvær tekjuleiðir:
1. Kostuð skipun. Vinsælasta skipunin er „Finndu styrki sem þú átt inni hjá stéttarfélaginu“. VR gæti kostað hana.
2. Merki á vefnum og efst í morgunpóstinum til 250 manns.
Tekjur hingað til: 0 kr.