@arnarsveinn Mjög áhugavert td að fylgjast með íslenskum fjölmiðlum vs fjölmiðlum hér úti í dk… örfáar covid fréttir inná milli og flestar á ‘jákvæðu’ nótunum
Það má vera í sjokki og það má “syrgja” þá ímynd sem maður hafði af hetjunum sínum, þetta eru allt mjög valid tilfinningar.
Svo vonum við bara að málið fái góða meðferð og að þolendur og aðstandendur fái öll þann stuðning sem þau þurfa.
Flóknari umræða sem þarf að taka í kjölfar #metoo:
Ungir gerendur sem vita ekki að þeir eru gerendur, þar sem skortur á kynfræðslu + umræðum um mörk spilar stórt hlutverk ásamt öðru úr samfélaginu. Það þarf að auka fræðslu akút til að vernda þennan hóp og koma í veg fyrir brot.
10/ Og er það ekki stærsta tækifærið í þessari hreyfingu/byltingu? Að normalísera það að stoppa vini sína af og að benda þeim á þegar þeir eru að stíga yfir línuna?
Ég held það.
Héðan í frá er því ekkert nettara í mínum huga en strákur sem horfir í augun á vini og segir stopp.