Mér finnst að sömu reglur eigi að gilda um fólk sem notar Ariel (og skyld efni) og gæludýr, á almannafæri. Í strætó myndu þau vera aftast og í búrum og bara lítið fólk leyft á sunnudögum í Kringlunni.
@RanieNro Dettur nokkrir hlutir í hug:
Svandís var óhlýðin XD og sýndi bakbein,
VG eykur vinsældir sínar með hvalveiðibanni,
XD vill ekki að VG auki vinsældir sínar þegar stjórnin stendur tæpt í skoðanakönnunum.
Svandís og VG er hollara vita hver ræður.
Þannig að í staðin fyrir að lögreglan tryggi að ökumenn fari að lögum við gangbrautir (með auknum sýnileika og sektum við brotum) er bara sleppt því að nota gangbrautir og gangbrautarmerkingar.
@reykjavik, Make it make sense.
@kirsuberjabaka Elska baby jogger city mini gt, hægt að fá vagnstykki, bílstólafestingar. Dugar uppí 35kg og brýst vel saman. Þægileg í akstri, í ferðalögum og hentar hávöxnum
.@Bjarni_Ben segist ekki hafa lesið greinargerp setts ríkisendurskoðanda í Lindarhvolsmálinu. Ráðherra er búinn að hafa þessa skýrslu undir höndum síðan 2018. Hún fjallar um félag sem hann stofnaði utan um mörg hundruð milljarða af almannafé. Ráðherra nennir ekki að lesa hana.
@naglalakk Omg barnið mitt myndi detta í sundur ef við gerðum þetta við greyið!
Fékk einlæga spurningu hvort matur væri í boði í Englandi og líka hvort að þar væru klósett 🥺
Garmurinn minn þarf ca 1-2 vikur fyrir brottför í undirbúning 🥲
Nei æ bara smá viðtal við mig hjá HÍ um rannsókn sem ég fann upp og framkvæmdi sjálf út frá BA ritgerðinni minni. Kv. Sú sem ákvað einu sinni að hún gæti ekki lært og að akademík hentaði henni ekki 👋🏻
https://t.co/5AbWmV5RcY
Það fer fátt meira í taugarnar á mér en að vera vænd um öfund þegar ég bendi á (ásamt mörgum öðrum) hvernig arði fiskveiðiauðlinda þjóðarinnar er ráðstafað. Öfunduðu einhverjir nýlenduherrana þegar þeir t.d. stálu demantanámunum af fátækum ríkjum Afríku? Hét sú tilfinning öfund?