Er bæði miðaldra og landsbyggðartútta þegar ég læt það fara í taugarnar á mér að höfuðborgarsvæðisbúar kvarta undan vondu veðri á Íslandi.
Vil samt meina að það sé kostur að ég geri mér grein fyrir hversu asnalegt það er að þetta fari í mig...
#veðrið#blessudblidan#islendingur
Fór með 11 ára dóttur mína að versla föt. Hún er í stærð 152. Ég varð að kaupa peysur&boli í 164-170 því hún vill ekki vera með bert á milli.. Eini bolurinn sem keyptur var í "réttri" stærð var úr drengjadeildinni því strákar eru ekki þvingaðir í magaboli. Panta bara að utan næst
Ísland eða MU verða að vinna sinn leik. Nógu dimmur er þessi sunnudagur án þess að unglingurinn á heimilinu leggist í tímabundið íþróttatengt þunglyndi... Ég hef ekki orkuna í það ✌️
JJ: Ég vona að Ísl vinni alla leikina sína. Nema Svíþjóð. En þú mamma?
Á: Ég vona að Ísland vinni alla, líka á móti Svíþjóð!
JJ: Í alvöru?! 😱
AV: Mamma er sko íslensk Johan! Bara við erum hálf..
Íslenska hjartað slær ekki nógu sterkt í þessum börnum mínum..
Svo er hægt að fara inn á https://t.co/GEMXypZ9I1 til að sjá fleira sem um er að vera í Akureyrarbæ! En þar er viðburðardagatal Hríseyjar, sem týnist stundum við hliðina á stóru systur Akureyri 🤍
Börnin útbjuggu margar gjafir. Ekki neina til okkar. Ekki einu sinni skólagjöfin sem er föndruð handa foreldrum fer undir okkar tré... Ég ákveð að taka þessu sem ég hafi alið þau upp sem mjög gjafmilda og hjartgóða einstaklinga. En ekki sem persónulegri gagnrýni á mig sem móður
Tók lokaskrefið inn í hið ljúfa miðaldra líf í dag. Jólakveðjan send inn á RÚV, lesin einu sinni í almennum kveðjum og einu sinni með kveðjum úr Eyjafjarðarsýslu.
#ljufalif
@gjafi_sigur Eftir að hafa búið í Reykjavík, Raufarhöfn, Hvanneyri, Kópaskeri, Akureyri og Hrísey. Þá er Hrísey staðurinn sem ég vel alltaf framyfir aðra. Komin aftur þangað með alla fjölskylduna og við elskum það
Covid bara enn að fara illa með plön
Þriggja daga pössun fyrir börnin klár í september. Allir spenntir. Tveimur dögum fyrir brottför er amma K komin með Covid og allt í upplausn.
Maður var fljótur að gleyma hversu mökkfokk óþolandi Covid er
#ammapassar#covidlifir#máéggrátanúna
Til að fyrirbyggja misskilning næstu daga, þá er stór meirihluti húseigenda í Hrísey oft í húsunum sínum og eru virk í samfélaginu! Okkur vantar samt fleiri íbúðir í búsetu og frístundarhús í frístundarbyggðina ❤️
Tíu milljónir renna til verkefna í Hrísey https://t.co/H5LDhu9ziY
Ég er móðir sem,vegna vinnu,þarf að ferðast í 1-2 nætur frá heimilinu nokkru sinnum á ári. Ég fæ að finna fyrir því að börnin séu eftirlitslaus, geti ekki treyst á að sé einhver heima osfrv.
Það er enginn að ræða þetta við pabba þeirra og reyna að koma inn samviskubiti hjá honum
@HuldaBWaage Ég hef verslað af Shein, fékk föt sem ég hef efni á og passa. Það væri óskandi að við feita ó-ríka fólkip og fjölskyldur (því ég kaupi jú föt fyrir 5) væru sannarlega til staðar. Annars versla ég mest í gegnum fb notuð föt í stærri stærðum hóp.Verst að geta ekki mátaði,mest á hbs
Kúra aðeins lengur á laugardagsmorgnum, morgunganga og svo rjúkandi heitur kaffibolli með heimagerðu vanillusýrópi.
Ég hefði aldrei trúað því hvað það er dásamlega notalegt að nálgast miðaldra
Svaraði spurningu í tíma þannig að ég héldi að fordómar innan ísl.lögreglu væru kannski minni en erlendis.
Sat svo umræðutíman og skipti um skoðun. Ég held að það séu mun meiri fordómar innan ísl.lögreglu en mig hefði nokkurntíma grunað. Er í sjokki