Skólamálaráðuneyti - bara ha?
Nei það sem við erum að gera hér í leik- grunn- tónlistar-, framhaldsskólum og frístundamiðstöðvum snýst um menntun og menningu.
Þetta er eins og að heilbrigðisráðuneytið myndi heita Spítalaráðuneytið.
Kvöldið mitt: Hótað að vera kærð fyrir ærumei��ingar af gaur sem ég var að hitta ehv í kringum 2019🤡🤡
Þaggar ekkert svona auðveldlega í mér elsku vinur…
Fékk covid í mars 2020. Í hálft ár gat ég ekki gengið lengra en ca 100 metra, svefn í rugli, ekkert bragð/lyktarskyn ofl. Taugakerfið er ennþá í rúst og suma daga er ég jafn slæm og þá.
Spítalatölur segja ekki alla söguna. Pössum okkur og aðra ♥️♥️♥️♥️
16 ára börn mega ekki kjósa.
16 ára börn mega ekki kaupa áfengi.
16 ára börn mega ekki keyra bíl einsömul.
En 16 ára börn bera alla ábyrgð á hegðun 36 ára karlmanna?
Gerandi sem vælir yfir atvinnuleysi ætti að prófa martraðir á nóttunni, svefnleysi, bregða við minnsta hnjask, endurrit um ofbeldið, ofsakvíða, tengslarof og óttann við að hitta mögulega gerandann hvar sem er.
Þannig geta nefnilega m.a verið afleiðingar ofbeldisins.
Mér finnst skipta máli að tala um það hvernig fólk sem hefur brotið af sér, og þ.a.l. misst mannorðið, á afturkvæmt í samfélagið.
En vá hvað ég vildi að samfélagið hefði jafn mikla samúð með þeim sem brotið er á og fá aldrei réttlæti, missa andlega heilsu, tækifæri, vinnustaði.
Hvar er drottningarviðtalið við allar leikkonurnar sem hefur verið smátt og smátt bolað úr bransanum vegna þess að þær vildu ekki vinna með ofbeldismönnum, sögðu frá ofbeldi eða settu óviðeigandi samstarfsmönnum mörk???
Til að hafa það á hreinu ef einhver þarna úti er undir aldri og að fá myndir eða kynferðisleg skilaboð frá fullorðnum láttu einhvern vita.
Fullorðnir bera ábyrgð á gjörðum sínum. Börn hafa rétt til að segja frá án þess að vera skömmuð fyrir það af fjölmiðlum eða öðrum.
Fékk senda mynd af frægum byrlara frá vinkonu minni sem hún fékk senda frá vinkonu sinni sem ég sendi á vinkonu mína sem sendi á vinkonu sína og nú er gæjinn bannaður á nokkrum skemmtistöðum
Gellur. Eru. Gellum. Bestar.