@haflidib Það var í útboðsferli í byrjun árs, mitt fyrirtæki ásamt tveimur öðrum var að skoða gögnin... en útboðsformatið var of flókið og við drógum okkur út útaf veseninu sem fylgdi þessu.
Mikil umræða um vítið sem ÍBV fékk í gær, hvort boltinn hafi farið í höndina eða andlitið. Tel að mistökin séu samt sem áður hjá Viktori að fara með hendurnar svona í loftið í tæklingunni, ónátturuleg staða á höndunum og þ.a.l á dómarinn auðvelt með að dæma á þetta #bestadeildin
@ThorgrimurSmari Ég fór í gegnum sömu hugleiðingar fyrir 6 mánuðum síðan, ákvað að kaupa mér 945, þau eru mjög svipuð í gæðum og fítusum, helsti munurinn er að skífan á fönix er um 8 mm stærri í þvermál. Er mjög hrifin af mínu 945!!
@FinnurV Mjög fróðleg lesning! Skemmtilegt hvernig Andri rammar þetta svona vel inn. Hverfin eiga vera fyrir fólkið sem býr í þeim, það á að vera forgangsmálið.
@BjornBergG Þetta er alveg magnað. Hversu heitt ætli honum hafi verið.... svo hugsa ég til VAR augnablika sem taka mörk LA Galaxy af og hann klæðir sig aftur í allar treyjurnar með svekkelsissvip