Konur í BNA eru að kaupa birgðir af daginn-eftir pillunni, af ótta við að réttur þeirra til eigin líkama skerðist verulega á næstunni. Það er nefnilega auðvelt að taka af fólki réttindi sem það hefur barist fyrir í áratugi. https://t.co/12aCrtOtqS
🔥 Óskum eftir tillögum að góðu orði fyrir utanáliggjandi hluta snípsins, e “baunina” (lol) 🔥 Hvernig væri eitt kynlaust orð yfir bæði kónginn og snípinn? 🤯
@volvanvolvan Endurteknar sveppasýkingar í leggöngum eru einkenni á ofvöxt af gersveppi í meltingarfærum, það er hægt að laga með mataræði (enginn sykur, sterkja og lág kolvetni) og með að taka náttúruleg sveppadrepandi efni. Svo er lífræn jógúrt í leggöng mjög góð aðferð.
Meiri óléttufróðleikur í þessum þræði 🙌 ✨ Höldum áfram að spurja twitter/vini/fjölskyldu (og jafnvel heilbrigðisstarfsfólk) út í líkamann okkar frekar en að þykjast bara vita allt 💕 https://t.co/OkRpuF5ubD
Er að verða fullgengin mína aðra meðgöngu og hef ekki hugmynd um hvað 'hæð á legbotni' merkir, hvað þá að ég viti hvað minn er hár. Háir mér aðallega í samanburði í íslenskum bumbuhóp. Fæðist fólk með þessa vitneskju? #óléttutwitter
Það að stunda kynlíf án þess að hafa nokkurn tímann stundað sjálfsfróun er eins og að koma ólærður í próf. Þú mátt alveg gera það en það gengur kannski ekki eins vel 🤔
Margir vita af því að píkur rifna í fæðingu - en hvernig er að nálgast kynlíf eftir barnsburð? Hverjar eru væntingar þínar gagnvart kynlífi fyrstu mánuði/ár eftir að píkan grær? Hverjar eru væntingar maka? Ræðið þið þessi mál? #tölumsaman#alltafaðlæra
Reynslusaga af slæmri rifnun með farsælan endi og góð tips ✨ TAKK öll fyrir að vera svona opinská og vilja ræða og fræða okkur um svona mikilvæg mál 💕🙏🏻
👉 @tobbasig svarar hvernig það er að kúka eftir að hafa rifnað í fæðingu. Mikilvægar upplýsingar og ekki svo vandræðalegt eftir allt saman ✨ https://t.co/oVUVrD7hHG
@volvanvolvan Það er vont og erfitt að kúka eftir alvarlegar spangarrifur, nauðsynlegt að tryggja mjúkar hægðir og jafnvel styðja við spöngina fyrir framan endaþarm við hægðalosun. Alvörumál og mikilvægt að hugsa um sjálfan sig 😀
Fleiri pælingar: Hvað gerir fólk sem hefur ekki lögbundinn rétt til fæðingaorlofs en getur ekki gengið tímabundið eftir að hafa fætt barn? 🤔🤔 Hvernig er að kúka ef það rifnar milli píku og endaþarms í fæðingu? 💩🌺 #mánudagspælingar#óléttutwitter#tölumsaman#alltafaðlæra
"[Í fæðingu] má segja að þessir líkamshlutar verði fyrir áverka sem eru jafngildir íþróttasköðum [...] mar, tognun á bandvefshimnum, taugaáverkar, vöðvatognanir og jafnvel rifnir vöðvar" 😮 https://t.co/v0qL9ON7WO #tölumsaman#alltafaðlæra
@perlagronvold Vá, hljómar fáránlega að svona basic upplýsingar séu ekki gefnar í undirbúningi! Get ekki ímyndað mér að þurfa að fara í að redda einhverju svona sem fyrsta verk eftir fæðingu 😶